Tónlist

Endurkoma Spice Girls samþykkt af Mel C.

Kryddpíurnar munu að öllum líkindum koma saman í lok þess árs og halda sex tónleika víðsvegar um heiminn.
Kryddpíurnar munu að öllum líkindum koma saman í lok þess árs og halda sex tónleika víðsvegar um heiminn.

Söngkonan Mel C hefur loksins samþykkt að koma fram með sínum fyrri félögum í hljómsveitinni Spice Girls og er nú ekkert því til fyrirstöðu að Kryddpíurnar snúi aftur á sjónarsviðið. Hinar Kryddpíurnar, Geri Halliwell, Mel B, Emma Bunton og Victoria Beckham, höfðu allar samþykkt endurkomuna en það var hjá Mel C sem hnífurinn stóð í kúnni - allt þar til í gær.



„Ég hef alltaf sagt að ég myndi aldrei koma aftur fram með hljómsveitinni. Við áttum frábæra tíma saman fyrir nokkrum árum sem voru töfrum líkastir. Ég hélt að sá tími yrði aldrei toppaður. En eftir alla umræðuna og vangavelturnar upp á síðkastið um endurkomu Spice Girls hef ég fundið fyrir stemningu og miklum þrýsting frá aðdáendum. Og ég vill ekki vera stelpan sem eyðileggur allt," sagði Mel C í útvarpsviðtali í gær.



Fátt getur nú komið í veg fyrir stutta tónleikaferð Kryddpíanna um heiminn í lok ársins en til stendur að þær komi fram á sex tónleikum í öllum heimsálfunum. Tónleikarnir verða þeir allra síðustu hjá hljómsveitinni og í framhaldinu verður gefin út safnplata sem mun innihalda öll vinsælustu lög sveitarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.