Sumartónleikar í Skálholti 29. júní 2007 05:00 Upphaf Sumartónleika í Skálholti er helgað minningu Manuelu Wiesler sem lést í vetur. Helga Ingólfsdóttir stofnandi hátíðarinnar minnist vinkonu sinnar og samstarfskonu í dag á minningartónleikum sem helgaðir eru Manuelu.
Á morgun hefjast Sumartónleikar í Skálholti og standa næstu fimm vikur. Eins og áður verður hátíðahald á Skálholtsstað um helgar og á fimmtudögum. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá, en meginþemað helgast af ártíð tveggja af merkari tónskáldum barokktímans, þeirra Buxtehude og Scarlatti. Báðir eru örlagavaldar í þróun barokksins en það tímabil er einn helsti hornsteinn hátíðahalda um hásumar í Skálholti. Buxtehude átti stóran þátt í að leggja grunn að fullkomnun barokksins. Scarlatti var af síðustu kynslóð barokkmeistaranna Ítalíu, þar sem vagga hennar var. Bachsveitin í Skálholti ásamt Kati Debretzeni fiðluleikara flytur verk hans og föður hans, Alessandros. Ítalía og Norður-Þýskalandssvæðið á barokktímanum eru í fyrirrúmi í sumar. Fjöldi flytjenda kemur við sögu auk Bachsveitarinnar: Barokksveitin Nordic Affect, sönghópurinn Gríma, Marta Hrafnsdóttir alt, Guðrún Hrund Harðardóttir víóluleikari, Vibeke Astner, orgelleikari frá Danmörku, Margaret Irwin-Brandon, orgelleikari frá Bandaríkjunum, Sigurður Halldórsson sellóleikari og Jaap Schröder, fiðluleikari frá Hollandi. Við upphaf hátíðarinnar mun Helga Ingólfsdóttir minnast samstarfs síns og Manuelu Wiesler flautuleikara sem lést í lok síðasta árs. Manuela átti gríðarstóran þátt í mótun Sumartónleika í Skálholtskirkju fyrstu árin. Verða tónleikar til heiðurs Manuelu þar sem Kolbeinn Bjarnason flautuleikari, Guðmundur Kristmundsson víóluleikari og Elísabet Waage hörpuleikari frumflytja verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson auk annars. Skálholtskvartettinn með Jaap Schröder í fararbroddi leikur verk eftir Haydn og Schubert og er það nýtt að flytja tónlist nítjándu aldar með hljóðfærum þess tíma. Ný tónverk verða frumflutt. Staðartónskáld eru þeir Sveinn Lúðvík Björnsson og Daníel Bjarnason. Ný messa eftir Svein Lúðvík verður flutt af Hljómeyki og nýtt verk eftir Daníel flutt af kammersveitinni Ísafold, sem leikur að auki verk eftir Pärt, Sciarrino, Schnittke, Boulez, Stravinsky, Xenakis og fleiri. Verk Huga Guðmundssonar, Apochrypha, fyrir mezzósópran, barokksveit og gagnvirk tölvuhljóð verður flutt í fyrsta sinn á Íslandi, en verkið verður frumflutt í Den Haag í Hollandi viku fyrr. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir syngur með Nordic Affect sveitinni. Daníel Bjarnason stjórnar, en hann er einnig stjórnandi Ísafoldar. Samstarfsverkefni Sumartónleika og austurrísku tónskáldafélaganna er samband landanna. Auk fyrirlestra verða og tónleikar með verkum eftir Werner Schulze, Helmut Neumann og Pál P. Pálsson í flutningi Graffe-strengjakvartettsins frá Tékklandi, Ingibjargar Guðjónsdóttur sópran, Einars Jóhannessonar klarinettuleikara og fleiri. Fyrirlestra halda Klaus Ager, forseti European Composer’s Council og Helmut Neumann tónskáld, sem kynnir óperu sína byggða á Sögu Borgarættarinnar eftir Gunnar Gunnarsson. Dagskráin í dag hefst kl. 14 með fyrirlestri Helgu. Skömmu fyrir þrjú hefst starfið í smiðjunni en stundvíslega kl. 15 eru tónleikarnir í minningu Manuelu. Skálholtskvartettinn leikur kl. 17 og verða þeir tónleikar endurteknir á sunnudag kl. 15. Guðsþjónusta verður í kirkjunni kl. 17. Á liðnu hausti var stofnað Hollvinafélag Sumartónleikanna. Á stofnfundi voru sr. Guðmundur Óli Ólafsson, Helga Ingólfsdóttir og Þorkell Helgason kjörnir heiðursfélagar. Fram til ársins 2004 höfðu Sumartónleikarnir ekki haft formfast skipulag. Helga Ingólfsdóttir semballeikari var listrænn stjórnandi frá upphafi og félag um tónlistarstarf í Skálholti, Collegium Musicum, einn af aðal bakhjörlum hátíðarinnar um nokkurt skeið. Árið 1990 var fulltrúaráð Sumartónleika stofnað. Voru í því fulltrúar þeirra aðila er stóðu að Sumartónleikum í Skálholtskirkju.Um mitt árið 2004 var formleg skipulagsskrá Sumartónleikanna samþykkt af dómsmálaráðuneytinu og þriggja manna stjórn skipuð. Nú skipa stjórn Sumartónleika þau Helga Ingólfsdóttir formaður sem er skipuð af vígslubiskupnum í Skálholti, Mist Þorkelsdóttir skipuð af Listaháskóla Íslands og Drífa Hjartardóttir skipuð af menntamálaráðherra. Sigurður Halldórsson sellóleikari er listrænn stjórnandi, en honum til halds og trausts er Halla Steinunn Stefánsdóttir framkvæmdastjóri og annast skipulag allt. Tónlistarhátíðin þiggur fjárframlög frá ríki og kirkju sem nema um tveimur þriðju af rekstrarkostnaði. Afgangurinn kemur frá einkafyrirtækjum, ýmsum stofnunum og sjóðum auk frjálsra framlaga frá tónleikagestum. Að vanda heldur hátíðin úti vefsíðu og þar má finna ýmislegt efni um hátíðahaldið: www.sumartonleikar.is
Mest lesið Vann ekki úr nauðguninni og skaddaðist á mænu Lífið Kim mældist með „litla heilavirkni“ Lífið Fagnaði 35 árum með stæl í Kólumbíu Lífið Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Menning Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Stjörnulífið: Ólétta og ást í 23 ár Lífið Radiohead frestar tónleikum sínum í Köben Lífið Heitustu pörin í húrrandi jólagír Tíska og hönnun „Besta byrjun á desember sem hægt var að hugsa sér“ Lífið Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Lífið samstarf Fleiri fréttir Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Bjallaði í eitt virtasta tónskáld Kasakstan Patti Smith heldur tónleika í Hörpu og Hofi Reggí-risinn Jimmy Cliff allur Lifandi tónlist beint í æð allan ársins hring Hlýja og nánd heima og uppi á sviði Gæsahúð gekk á milli gesta á Stuðmönnum Lög sem mönnum yrði slaufað fyrir í dag Frumsýning á Vísi: Fögnuðu nýjum lífstíl Lítið mál að trylla lýðinn kasólétt Fagnar fimmtugsafmæli með fyrstu tónleikum Ampop í átján ár Tók málin í eigin hendur og stofnaði nýja metal-hátíð á Selfossi Una Torfa heillaði baðgesti upp úr sundskónum Áhrifamikill óður til Grindvíkinga Sjá meira