Tónlist

Tónleikar Stones í Belgrad færðir vegna hrossa

Rolling Stones 
spila í Serbíu í fyrsta sinn í þessum mánuði.
Rolling Stones spila í Serbíu í fyrsta sinn í þessum mánuði.

Fyrirhugaðir risatónleikar Rolling Stones í Belgrad í Serbíu hafa verið færðir vegna mikilla mótmæla dýraverndunarsinna um þau slæmu áhrif sem tónlistin gæti haft á hross í nágrenninu.

 Áætlað var að tónleikarnir færu fram á stærstu veðreiðabraut landsins sem tekur yfir 80 þúsund manns en skipuleggjendur höfðu áhyggjur af því að 300 hross sem hafa búsetu í bakhúsi við höllina myndu tryllast við lætin í gamlingjunum í Stones. Því hefur verið ákveðið að halda tónleikana í almenningsgarði í borginni þann 14. júlí næstkomandi.



Tónleikarnir eru hluti af Bigger Bang-tónleikaferð Stones um heiminn en þetta er í fyrsta sinn sem hljómsveitin kemur fram í Serbíu. Árið 2003 varð sveitin að hætta við tónleika vegna morðsins á þáverandi forsætisráðherra landsins, Zoran Djindjic, og á síðasta ári urðu rokkararnir að aflýsa áætluðum tónleikum vegna veikinda Keiths Richards.

Almennt er talið að þetta sé síðasta tónleikaferð The Rolling Stones um heiminn, enda þótt meðlimir sveitarinnar segist ekki vera á leiðinni að hætta. Af þessum sökum hefur verið mikill áhugi í Serbíu fyrir tónleikum Keith Richards og félaga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.