Tónlist

Kira Kira í kvöld í Iðnó

Kira Kira við æfingar í vikunni. F.v. Alex Somers (klukkuspil), Eiríkur Orri Ólafsson (trompet), Snorri Páll Jónsson (trommur), Kira Kira, Kristín Björk Kristjánsdóttir (gítar) og Pétur Hallgrímsson (kjöltustálgítar).
Kira Kira við æfingar í vikunni. F.v. Alex Somers (klukkuspil), Eiríkur Orri Ólafsson (trompet), Snorri Páll Jónsson (trommur), Kira Kira, Kristín Björk Kristjánsdóttir (gítar) og Pétur Hallgrímsson (kjöltustálgítar).

Tónlistarkonan Kira Kira eða Kristín Björk Kristjánsdóttir heldur tónleika í kvöld af því tilefni að hún hefur nú lokið upptökum á nýju safni tónsmíða sem væntanlegar eru á markað síðla árs eða í ársbyrjun 2008. Með henni á sviði gamla Iðnaðarmannahússins verða Seabear og Hudson Wayne. Herlegheitin hefjast upp úr tíu að kvöldi og verður vonandi friður fyrir lendingum einkaþotna yfir Tjörninni þessa kvöldstund.



Kira er nýkomin úr siglingu: hún var að túra um vesturströnd Bandaríkjanna, spilaði í San Diego, LA, San Francisco, Portland og Seattle. Með henni í för voru Mice Parade og Tom Brusseu. Þaðan hoppaði hún yfir meginlandið og lenti í Vermont og giggaði þar með Charalambides.



Áður en túrinn vestanhafs hófst hljóðritaði hún í Finnlandi efni á nýja plötu. Þar lögðu þarfa hönd á plóginn Samuli Kosminen, Eiríkur Orri, Alex Somers, Hilmar Jensson og Pekka.



Það er fáu lofað um prógrammið utan nýs efnis. Seabear mun leika efni af nýjum diski og Wayne fer með kyrrláta sveitasöngva. Miðasala er við innganginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.