Tónlist

Kokkteilkvartett í góðu grúvi

Með kokkteilbandinu er hún í fyrsta sinn að syngja eitthvað annað en eigin lög.
Með kokkteilbandinu er hún í fyrsta sinn að syngja eitthvað annað en eigin lög. Fréttablaðið/Hörður

Lára Rúnarsdóttir syngur í nýju „kokkteilbandi“ sem ber heitið Kvartett Jakobs Smára Magnússonar. Vignir Guðjónsson fékk að vita meira um málið.



„Við köllum þetta kokkteilband því það er ákveðinn fílingur yfir þessari tónlist. Við erum að spila gömul eighties-lög og setjum þau í nýjan búning eftir eigin höfði. Úr verður svolítið sérstakt en mjög gott grúv,“ segir Lára en æfingar hjá sveitinni hafa staðið yfir síðustu vikur.



Kvartettinn er hugarfóstur bassaleikarans Jakobs Smára Magnússonar og því fær hans nafn að njóta sín í titli kvartettsins. „Hann er forsprakkinn og hugmyndasmiður á bak við þetta allt saman. Hann sér um að velja lög og heldur þessu saman. Algjör snillingur,“ segir Lára.



Auk þeirra tveggja spilar Pétur Hallgrímsson á gítar og Arnar Gíslason, unnusti Láru, lemur húðir. Söngkonan segir samstarfið með kærastanum ganga mjög vel. „Þetta gengur mjög vel hjá okkur og enginn ágreiningur hefur komið upp. Ég held að það fari bara vel saman að vera með kærastanum í hljómsveit,“ segir Lára og hlær.



Enn sem komið er hefur kvartettinn ekki komið fram opinberlega en fram undan er spilamennska í mannfögnuðum af ýmsu tagi. „Við erum að leggja lokahönd á prógramið og förum þá af stað fyrir alvöru,“ segir Lára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.