Tónlist

ET Tumason: Live At 8MM - þrjár stjörnur

Einfaldleiki og einlægni einkenna þennan tíu laga tónleikadisk með hinum efnilega blúsnýliða Elliða Tumasyni.
Einfaldleiki og einlægni einkenna þennan tíu laga tónleikadisk með hinum efnilega blúsnýliða Elliða Tumasyni.

ET Tumason er listamannsnafn blúsarans Elliða Tumasonar. Live At 8MM er hans fyrsta plata. Hún var tekin upp á tónleikum á barnum 8MM í Berlín, en hann er í eigu sömu aðila og reka 8MM Records, lítið óháð plötufyrirtæki sem hefur getið sér gott orð á undanförnum árum og gaf m.a. nýverið út safnplötuna The Curse, The Life, The Blood með Singapore Sling.

Það eru tíu lög á Live At 8MM, átta frá tónleikunum sjálfum og tvö sem tekin voru upp í hljóðprufu fyrr sama dag.

Elliði spilar á kassagítar og syngur. Lögin eru flest frumsamin, en að auki er þarna m.a. útgáfa Elliða af laginu Dust My Broom eftir Robert Johnson. Tónlistin er hreinræktaður blús sem Elliði leyfir að flæða með impróviseringum og sólóum. Blús eins og þessi er auðvitað ekki ný tónlist, en það sem gerir þessa plötu ferska og skemmtilega er einfaldleikinn og einlægnin sem skín í gegn. Elliði hefur greinilega sviðsþokka og þessi hálftími á barnum hefur komist ómengaður yfir á diskinn.

ET Tumason er efnilegur nýliði. Þessi litla útgáfa er vonandi bara forsmekkurinn af því sem hann á eftir að taka sér fyrir hendur á tónlistarsviðinu. Fínn forsmekkur.

Trausti Júlíusson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.