Heilsa

Sameiginleg ábyrgð á unglingum

Unglingar fá fleiri tækifæri til áfengisneyslu á bæjar- og útihátíðum, sem fer fjölgandi. Skipuleggjendur og foreldrar ættu að bera sameiginlega ábyrgð.

Bæjar- og útihátíðir gefa sumrinu skemmtilegan blæ. Þeim fer fjölgandi ár hvert en leiðinlegur fylgifiskur slíkra hátíða er oft ölvun og óspektir. Hátíðirnar gefa því miður unglingum fleiri tækifæri til að neyta áfengis og því hefur Lýðheilsustöð sent frá sér áminningu um ábyrgð skipuleggjenda og foreldra.

Fullorðnir eru alltaf fyrirmynd barna og ungmenna varðandi áfengisdrykkju. Lýðheilsustöð hvetur til sameiginlegrar ábyrgðar þannig að bæjar- og útihátíðir geta staðið undir nafni og verið hátíð og skemmtun. Sjá nánar um áminningu Lýðheilsustöðvar: www.lydheilsustod.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.