Tónlist

Vináttan sem sprakk

Bubbi og Megas syngja saman á tónleikum 17. júní 1985.
Bubbi og Megas syngja saman á tónleikum 17. júní 1985.

Töluverð umræða hefur verið uppi um lagið „(Minnst tíu miljón) Flóabitanótt" sem er að finna á nýjustu plötu Megasar, Frágangur. Hefur því verið haldið fram að í laginu sé Megas að skjóta föstum skotum að Bubba Morthens, sem Megas hefur reyndar sjálfur harðneitað í útvarpsviðtali.

Einnig hefur því verið fleygt að lagið „Gott er að elska" sé einhvers konar vísun í hið vinsæla lag Bubba, „Það er gott að elska", sem kom út á plötunni Lífið er ljúft árið 1993.

Meistari Megas hefur gefið út nýja plötu sem nefnist Frágangur.

Vináttusambandið sprakk

„Mér þykja þessi lög mjög forvitnileg, sérstaklega í ljósi þess að Megas og Bubbi hafa átt eitt merkilegasta vináttusamband íslenskrar rokksögu. Bubbi dró Megas í sviðsljósið og Megas kenndi Bubba að yrkja. Síðan sprakk vináttusambandið í loft upp en enginn veit af hverju," segir útvarpsmaðurinn Freyr Eyjólfsson, sem er mikill Megasar­aðdáandi. 

Hann er hæstánægður með nýjustu plötu meistarans, sem er hans fyrsta með nýju efni í sex ár. „Mér finnst hún alveg frábær. Ég segi það hiklaust að þessi plata er ein af fimm bestu Megasarplötunum." 

Fjölmargar gróusögur

Bubbi og Megas störfuðu mikið saman á níunda áratugnum og gáfu meðal annars út plötuna Bláir draumar. Auk þess sungu þeir saman lagið Fatlafól við miklar vinsældir íslensku þjóðar­innar. Eitthvað slettist upp á vinskap þeirra nokkrum árum síðar og hafa sögurnar í kringum það verið eins misjafnar og þær eru margar. Ein er sú að þegar Bubbi og Megas voru að spila saman á tónleikum í Austurbæjar­bíói fundust fíkniefni á svæðinu og lentu þeir í rimmu í kjölfarið. Önnur er sú að Megas átti að hafa verið að skoða bækur í bókabúð nokkurri þegar Bubbi sá hann og kom til að heilsa honum. Strunsaði Megas þá út og vildi ekkert með vinskap Bubba hafa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.