Tónlist

Styrktartónleikar Para-Dís

Hafdís Vigfúsdóttir og Kristján Karl Bragason styrkja minningarsjóð um Susie Rut Einarsdóttur með tónleikum á morgun.
Hafdís Vigfúsdóttir og Kristján Karl Bragason styrkja minningarsjóð um Susie Rut Einarsdóttur með tónleikum á morgun.

Lokatónleikar verkefnisins „Tónaregn í Reykjavík“ fara fram í Dómkirkjunni annað kvöld. Hafdís Vigfúsdóttir og Kristján Karl Bragason mynda saman dúóið Para-Dís, en þau hafa unnið að Tónaregni í Reykjavík á vegum Hins hússins í sumar. Því lýkur með tónleikum til styrktar minningarsjóði um Susie Rut Einarsdóttur, sem lést 18. júní síðastliðinn, 22 ára að aldri. Vinir hennar standa að stofnun sjóðsins, sem mun einkum styðja við verkefni sem stuðla að forvörnum gegn notkun fíkniefna meðal ungs fólks í áhættuhópum, eða verkefni til stuðnings þeim sem þegar hafa lent á braut fíkniefna en vilja snúa frá henni.

Hafdís Vigfúsdóttir útskrifaðist með B. Mus-gráðu í flautuleik frá Listaháskóla Íslands vorið 2005. Frá hausti 2006 hefur hún stundað nám í Conservatoire National de Région de Rueil-Malmaison hjá Philippe Pierlot, sem er fyrsti flautuleikari í Orchestre National de France. Kristján Karl Bragason útskrifaðist úr píanónámi við Tónlistarskólann á Akureyri vorið 2002. Haustið 2005 hóf hann nám við Conservatoire Nationale de Région de Versailles hjá Eddu Erlendsdóttur, og stefnir á að ljúka þaðan DEM-gráðu vorið 2008.



Aðstandendur hvetja alla til að mæta og leggja málefninu lið. Tónleikarnir hefjast klukkan 20 annað kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.