Tónlist

Reykjavík! í 12 Tónum

Hljómsveitin þykir hressandi á tónleikum og fá gestir 12 Tóna að upplifa slíkan hressleika í dag.
Hljómsveitin þykir hressandi á tónleikum og fá gestir 12 Tóna að upplifa slíkan hressleika í dag.

Hin kröftuga hljómsveit Reykjavík! leikur í 12 Tónum í dag ásamt áströlsku sveitinni Because of Ghosts. Sú síðarnefnda er allþekkt í heimalandinu og er komin hingað til að freista þess að kynnast lifnaðarháttum Íslendinga.

Ný plata er svo væntanleg frá hljómsveitinni Reykjavík! snemma á næsta ári en sveitin hefur lítið leikið á tónleikum í sumar enda hafa meðlimir verið uppteknir við æfingar- og lagasmíðar. Tónleikarnir í dag verða einnig prufukeyrsla fyrir væntanlega ferð sveitarinnar til Þýskalands en plötuútgáfan Cargo gefur út frumburð þeirra frá síðasta ári, Glacial Landscapes, Religion, Oppression & Alcohol, á meginlandi Evrópu síðar í þessum mánuði. Tónleikarnir hefjast klukkan fimm og verður gestum boðið upp á léttar veitingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.