Dómsmála-ráðherra á leik 3. september 2007 06:15 Án starfsmanna erum við ekki neitt," sagði Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, við Fréttablaðið á fimmtudag. Tilefni ummælanna var mikið brotthvarf reyndra lögreglumanna úr liði lögreglustjóra á síðustu mánuðum og fyrirséðir erfiðleikir við að fylla skörð þeirra. Lögreglustjórinn benti jafnframt á hin augljósu viðbrögð við þessari alvarlegu stöðu; hið opinbera hlyti að þurfa að velta fyrir sér að fara í „launalagfæringar áður en samningstímabilinu líkur," sagði hann. Varpaði lögreglustjóri þar með boltanum yfir í Skuggasund en þar situr Björn Bjarnason ráðherra dómsmála, sem hlýtur að axla ábyrgð á því að reka málið innan ríkisstjórnar og gagnvart fjármálaráðherra. Fáir geta efast um að kjör lögreglumanna verða að batna. Þeir hafa sannarlega setið eftir og laun þeirra eru nú umtalsvert lægri en laun fangavarða og tollvarða, sem sinna skyldum störfum. Um helgina skrifuðu tveir borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Dagur B. Eggertsson og Oddný Sturludóttir, grein í Morgunblaðið um reynslu sína af næturvakt með lögreglumönnum að störfum í miðborginni að helgi til. Voru borgarfulltrúarnir með í tilraunaför gönguhóps lögreglumanna og gekk tilraunin út á að reyna áhrif sýnilegrar löggæslu. Þau voru auðvitað mjög góð, eins og við var að búast. Önnur niðurstaða næturinnar var mun merkilegri, þó að hún hafi alls ekki komið á óvart heldur. Dagur og Oddný komust sem sagt að því að fyrir tuttugu árum voru að jafnaði yfir tuttugu lögregluþjónar á slíkum gönguvöktum í miðbænum um helgar. Það er seinni tíma uppfinning lögregluyfirvalda að halda að löggæsla og forvarnir vinnist betur út um bílrúður og af skjám eftirlitsmyndavéla en með fótgangandi mönnum. Góðu heilli er það sjónarmið á undanhaldi. En til þess að lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins geti unnið vinnuna sína og eflt sýnilega löggæslu þarf hann mannskap. Í þeim efnum verður hann að fá liðsstyrk dómsmálaráðherra, sem sannarlega hefur reynst lögreglumönnum haukur í horni hingað til þótt hann hafi lítið tjáð sig um þá alvarlegu kreppu sem blasir við vegna fækkunar í lögregluliðinu. Dómsmálaráðherra hefur verið gagnrýndur fyrir að hafa meiri áhuga á greiningardeildum og vopnaðri sérsveit en hefðbundnum daglegum störfum lögreglunnar. Taka má undir þetta án þess þó að á neinn hátt sé þar með dregið úr mikilvægi fyrrnefndra óhefðbundnari þátta löggæslunnar. Þar hefur Björn Bjarnason vissulega sýnt mikla framsýni og forystu sem dómsmálaráðherra. Nú er hins vegar kominn tími til að dómsmálaráðherra taki af sömu röggsemi á vandræðum lögreglunnar við að sinna hversdagslegri störfum. Í því samhengi má gjarnan rifja upp hvernig Steinunn Valdís Óskarsdóttir tók af skarið sem borgarstjóri og gekkst fyrir að laun ófaglærðra leiðbeinenda í leikskólum voru hækkuð verulega með kjarasamningum, og síðar leikskólakennara utan kjarasamninga, einmitt þegar leikskólar borgarinnar stóðu frammi fyrir álíka vanda við að manna stöður og lögreglan nú. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Kaldal Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun