Jónas minn Bergsteinn Sigurðsson skrifar 16. nóvember 2007 00:01 Jónas Hallgrímsson á afmæli í dag og hefði orðið 200 ára hefði hann lifað. Íslendingar eiga Jónasi margt að þakka. Jónas fæddist á Hrafnseyri í Arnarfirði á nítjándu öld. Talið er að hann hafi átt erfiða æsku, að minnsta kosti orti hann ekki mikið um æskustöðvar sínar. Sumir halda þó að hið dularfulla kvæði Allsnjóað sé kannski um Arnarfjörð enda var þar oft snjóþungt. Jónas var líka náttúrufræðingur og fyrstur manna til að rækta kartöflur í Sauðlauksdal og skrifaði um það bókina Búnaðarbákn. Jónas gaf til að byrja með út margar bækur sem vöktu ekki athygli. Hann sló hins vegar í gegn með ljóðinu Ferðalag, þar sem hann yrkir meðal annars „greiddi ég þér lokka við Grafarvog". Þar strax sýndi Jónas hvað hann var langt á undan sinni samtíð, með því að yrkja kvæði um Grafarvog löngu áður en Grafarvogur varð til. Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem þetta kemur fram. Það má því með sanni segja að Jónas hafi verið fyrsta Grafarvogsskáldið, langt á undan Sigmundi Erni. Jónas var líka í skáldahópnum Fjölni sem íþróttafélagið í Grafarvogi er nefnt eftir. Jónas var uppi á tíma þegar Íslendingar töluðu ekki góða íslensku. Jónas og Fjölnismenn voru aðilar að ákvörðunartökunni um að snúa vörn í sókn. Jónas hljóp undir bakka með þjóðinni og samdi mörg nýyrði, til dæmis apótek, harmóníka og flatskjár. Þannig er Jónas enn í dag gríðarlega áhrifamikill í íslensku hvað málbeitingu varðar. Jónas elskaði Ísland og samdi til dæmis ljóðið Ísland er land þitt sem frægt lag var samið við og sumir vilja að verði spilað á landsleikjum. Íslendingar elska líka Jónas. Bækur eftir Jónas eru enn mjög vinsælar á Íslandi, sérstaklega fyrir fermingar, sérstaklega Passíusálmarnir. Jónas var líka mjög rómantískur eins og sést á ástarljóðum hans til Vatnsenda-Rósu. Jónas dó langt fyrir aldur fram og var ekki ófáum harmdauði þegar hann varð fyrir sporvagni í Kaupmannahöfn árið 1924. Jónas var ekki nema 27 ára þegar hann dó. Það merkilega við það er að margt annað frægt fólk var líka 27 ára þegar það dó. Jónasar verður alla veganna alltaf minnst á sama vettvangi og Janis Joplin, Jim Morrison og Kurt Cobain. Jónas var sko ekki verra skáld en þau. Hvernig er það, verðum við ekki að fara að reisa styttu af Jónasi? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bergsteinn Sigurðsson Mest lesið Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason Skoðun
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun