Viðskipti innlent

Elin Gabriel lætur af störfum hjá Actavis

Elin Gabriel, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Actavis í Vestur Evrópu, mun láta af störfum hjá félaginu í þessum mánuði en Aidan Kavanagh, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs samstæðunnar í Mið-, Austur-Evrópu og í Asíu mun taka yfir ábyrgðarsviði hennar ásamt Ferghal Murphy yfirmanni innkaupasviðs Actavis.

Haft er eftir Róberti Wessmann, forstjóra Actavis, í tilkynningu frá fyrirtækinu, að Elin hafi unnið gott starf fyrir fyrirtækið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×