Hagnaður Vinnslustöðvarinnar dregst saman 7. febrúar 2007 09:07 Úr Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Mynd/Hari
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum skilaði 335 milljóna króna hagnaði á síðasta ári samanborið við 442 milljónir króna árið áður. Hagnaður fyrirtækisins dróst því saman sem nemur 107 milljónum króna. Þar af nam hagnaðurinn 248 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi 2006. Heildartekjur Vinnslustöðvarinnar námu rétt rúmum 5,8 milljörðum króna á árinu en það er tæplega 1,4 milljörðum meira en árið á undan. Þar af jukust tekjur af fiskvinnslu um 47,1% en tekjur útgerðar jukust um 25,5%. Rekstrargjöld jukust um 13,7%, að því er fram kemur í uppgjöri Vinnslustöðvarinnar. Eigið fé lækkaði frá áramótum um 80 milljónir króna. Lækkun eigin fjár stafar fyrst og fremst af útgreiðslu arðs sem nam 445 milljónum króna. Á móti hækkaði eigið fé um hagnað ársins að upphæð 335 milljónir króna og 31 milljón króna vegna mismunar á kaupum og úthlutun eigin bréfa til hluthafa. Þá námu afskriftir 344 milljónum króna í fyrra sem er 16 milljónum króna minna en árið 2005. Niðurstaða fjármagnsliða var neikvæð um 889 milljónir króna. Gengistap nam 796 milljónum króna sem er viðsnúningur frá 280 milljóna króna gengishagnaði árið 2005. Í ársuppgjöri Vinnslustöðvarinnar kemur fram að reksturinn hafi gengið vel á haustmánuðum. Muni mestu um að stutt var að sækja síldarafla félagsins og var verulegur hluti aflans unninn til bræðslu sökum erfiðra stöðu á mörkuðum fyrir síldarafurðir til manneldis. Í uppgjörinu kemur fram að rekstrarhorfur á yfirstandandi rekstrarári séu góðar og að óbreyttu sé líklegt að tekjur og afkoma verði með svipuðum hætti og í fyrra ef gengissveiflur krónunnar eru undanskildar. Uppgjör Vinnslustöðvarinnar
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira