Ónefndi maðurinn, sáttmáli Framtíðarlandsins, rauðljósahverfi 20. mars 2007 13:18 Hví má ekki segja nafn ónefnda mannsins í Baugsmálinu? Hvers vegna má ekki nefna hann? Hvaða launhelgar eru hér á ferðinni? Á þetta sér eðlilega skýringu eða er þetta eitthvað í anda júdaisma þar sem Guð hefur ýmis nöfn sem birta ólíkar hliðar hans, en sum eru svo heilög að ekki má segja þau upphátt? Styrmir og Kjartan vita sjálfsagt að allir vita hver ónefndi maðurinn er. En nafn hans má ekki segja opinberlega. --- --- --- Í 48. grein stjórnarskrárinnar stendur að alþingismenn séu eingöngu bundnir af sannfæringu sinni en ekki við neinar reglur frá kjósendum sínum. Vegna þessa er maður pínulítið hugsi yfir svokölluðum sáttmála um framtíð Íslands sem Framtíðarlandið er að þröngva þingmönnum til að skrifa undir. Ég verð að segja eins og er að ég ber meiri virðingu fyrir þeim þingmanni sem tjáir sjálfstæða skoðun á stóriðjumálum, virkjunum og orkunýtingu og rökstyður hana vel - hver sem hún kann svo að vera - en sem lætur reka sig eins og rollu í rétt að skrifa undir svona sáttmála. Alveg burtséð frá því hvað stendur í sáttmálanum eða hversu góður hann kann að vera. --- --- --- Samkvæmt nýju frumvarpi virðist vændi vera orðið löglegt á Íslandi. Altént er ekki refsivert að selja það, hafa af því framfærslu, þótt þriðji aðili megi ekki hagnast á því og ekki megi auglýsa það. En það má ekki heldur auglýsa áfengi. Og það er heldur ekki bannað að kaupa það - sænska leiðin svokölluð fékk ekki brautargengi í þinginu. Samkvæmt Atla Gíslasyni, lögmanni og femínista, er ekkert því til fyrirstöðu að hér verði til rauðljósahverfi. Aðalröksemdin í þessu er að ekki sé rétt að refsa þeim sem stunda vændi. Orðalagið er reyndar yfirleitt "að leiðast út í vændi". Það er staðhæft að þeir sem leggi fyrir sig vændi geri það út úr neyð. Og vissulega er það svo í mörgum tilvikum. Dópistar selja sig til að fjármagna fíkn sína og þeir stela líka og svíkja. Ég ætla ekki að taka undir sögusögnina um hamingjusömu hóruna. En hvað með þann sem telur sig hafa betra upp úr vændi en til dæmis að vinna við skúringar eða í fiski. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pistlar Silfur Egils Skoðanir Mest lesið „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason Skoðun Útlensk skólabörn, íslenska og enska Roza Matijević Ismailovski Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun EES-líflínan er tekin að trosna Einar Karl Haraldsson Skoðun Hefur einhver trú á topplistum? Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir Skoðun Una 72% evrópubúa sér vel í Evrópusambandinu? Andri Sigurðsson Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson Skoðun
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun