Tónlist

Björk á Íslandi

Hadda Hreiðarsdóttir skrifar

Björk heldur sína fyrstu tónleika hér á Íslandi í sex ár mánudaginn 9. apríl í Laugardalshöll. Þetta verða fyrstu tónleikarnir í heimstónleikaferð Bjarkar til kynningar á nýrri breiðskífu, Volta, sem kemur út um heim allan þann 7. maí. Þetta verður í fyrsta sinn sem ný lög af þessari plötu munu hljóma, en á prógramminu eru líka eldri lög af fyrri plötum Bjarkar.

Með Björk í Laugardalshöll leika Mark Bell og Damian Taylor sem sjá um raftæki hverskonar, Chris Corsano, ungur og efnilegur trommuleikari, Jónas Sen spilar á orgel og hljómborð. Fyrir tónleikana í Höllinni og heimstónleikaferðina sem fylgir í kjölfarið hefur Björk sett saman 10 kvenna blásturleikararhóp, sem má telja harla óvenjulegt, en hann skipa: Brynja Guðmundsdóttir, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, Harpa Jóhannsdóttir, Erla Axelsdóttir, Særún Ósk Pálmadóttir, Bergrún Snæbjörnsdóttir, Valdis Þorkelsdóttir, Sylvia Hlynsdóttir, Björk Nielsdóttir og Sigrún Jónsdóttir.

Tónleikaferðin sem nú er að hefjast mun vara í 18 mánuði og er þetta með lengri ferðum sem Björk hefur farið í með tónlist sína. Áhersla verður lögð að fara til heimshluta sem hún hefur ekki farið til eða langt síðan að hún heimsótti.

Volta er sjötta hljóðversplata Bjarkar og kallar hún til liðsinnis við sig marga tónlistarmenn, en þar skal fyrst telja Timbaland, Mark Bell úr LFO, Konono n1, Toumani Diabate, Min Xiao-Fen, Chris Corsano og Brian Chippendale úr Lightning Bolt.

Miðasala fyrir tónleikana hefst miðvikudaginn 28. mars kl. 10:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.