Lífið

Versache berst fyrir lífi sínu

Donatella og Allegra Versache.
Donatella og Allegra Versache.

Tískuhönnuðurinn Donatella Versache hefur staðfest að tvítug dóttir hennar berjist fyrir lífi sínu vegna lystarstols. Allegra er ekki nema 32 kíló að þyngd, og er nú undir læknishendi. Ekki þó á sjúkrahúsi heldur hafa sérfræðingar verið fengnir til þess að annast hana heima.

Donatella segir að hún hafi brugðist vel við meðferðinni og vonandi nái hún að jafna sig.

Þegar Allegra varð myndug fyrir tveim árum fékk hún arf eftir Gianni Versache, frænda sinn, sem var myrtur í Bandaríkjunum árið 1997. Stúlkan hefur því sannarlega efni á því að borða því arfurinn sem hún fékk losaði fjörutíu milljarða króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×