Hagnaður TM eykst 8. maí 2007 15:56 Merki Tryggingamiðstöðvarinnar.
Tryggingamiðstöðin skilaði hagnaði upp á 886 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 626 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Rekstrartap af vátryggingastarfsemi nam fimm milljónum króna sem er talsverður viðsnúningur frá síðasta ári þegar tapið nam 215 milljónum króna. Í uppgjör Tryggingamiðstöðvarinnar kemur fram að bókfærð iðgjöld hafi ríflega tvöfaldast á milli ára og námu þau 8.675 milljónum króna samanborið við 4.082 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Rekstrarhagnaður nam 1.369 milljónum króna á tímabilinu samanborið við 1.150 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi í fyrra. Eigið fé samstæðu Tryggingamiðstöðvarinnar minnkaði lítillega á milli ára. Það nam tæpum 21,3 milljörðum króna í lok fjórðungsins nú samanborið við tæpa 22 milljarða krónur í lok fyrsta ársfjórðungs í fyrra. Heildareignir Tryggingamiðstöðvarinnar námu 73.812 milljónum króna í lok tímabilsins og jukust þær um sex prósent frá áramótum. Þá kemur fram að norska vátryggingarfélagið Nemi hafi orðið hluti af Tryggingamiðstöðinni frá byrjun september í fyrra og hafi áhrif á samanburð rekstrar og efnahags Tryggingamiðstöðvarinnar. Óskar Magnússon, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, segir í uppgjörinu, að áframhaldandi vöxtur vátryggingastarfsemi einkenni starfsemi félagsins á Íslandi en að tjónaþróun tveggja vátryggingagreina á Íslandi sé enn áhyggjuefni. „Tap er enn af slysatryggingum sjómanna og hafa þær ráðstafanir sem gripið var til á árinu 2006 ekki skilað sér að öllu leyti. Tjónaþróun í greininni er sérstakt áhyggjuefni. Frjálsar ökutækjatryggingar eru reknar með tapi en gripið var til ráðstafana til að snúa þeirri þróun við undir lok ársins 2006," segir hann. Uppgjör Tryggingamiðstöðvarinnar
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Uppsagnir hjá ÁTVR Viðskipti innlent Alþjóðlegur risi leysir Wok on af hólmi Viðskipti innlent 1,5 milljarða gjaldþrot og Landsbankinn fékk varla krónu Viðskipti innlent Ekkert áfengi á sunnudögum og seint á kvöldin Viðskipti innlent Úr kirkjunni í brúna hjá Herjólfi Viðskipti innlent Tveggja milljarða gjaldþrot Ingvars Jónadabs tók tíu ár Viðskipti innlent Eina bakaríi bæjarins skellt fyrirvaralaust í lás Viðskipti innlent Stofna félag utan um Origo og þrettán önnur rekstrarfélög Viðskipti innlent „Það segir sig sjálft að við höfum endalausa orku“ Atvinnulíf Ráðin framkvæmdastjóri Pekron Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekki útilokað að stýrivextir lækki Gengið frá sölu á hluta Endor Stofna félag utan um Origo og þrettán önnur rekstrarfélög Eina bakaríi bæjarins skellt fyrirvaralaust í lás Ekkert áfengi á sunnudögum og seint á kvöldin Alþjóðlegur risi leysir Wok on af hólmi Úr kirkjunni í brúna hjá Herjólfi Uppsagnir hjá ÁTVR Ragnheiður Theodórs ein af fimm til PLAIO Tveggja milljarða gjaldþrot Ingvars Jónadabs tók tíu ár 1,5 milljarða gjaldþrot og Landsbankinn fékk varla krónu Ráðin framkvæmdastjóri Pekron Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Salzburg úr sögunni hjá Play Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Frá RÚV til Coca-Cola Verulega minni verðbólga Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Sjá meira