Tónlist

50 cent hótar að hætta að gefa út sólóplötur

50 cent
50 cent

Rappgölturinn 50 cent hefur hótað því að binda enda á einleikaraferill sinn ef geislaskífa rapparans Kanye West selst betur en hans eigin, en báðar eru þær væntanlegar þann 11. september næstkomandi. 50 cent hyggst þó ekki láta af tónlistarstörfum ef svo illa fer, heldur einungis starfa með öðrum tónlistarmönnum.

Það skarst heldur í odda með þeim röppurum þegar ljóst var að geislaskífur þeirra kæmu út á sama degi. 50 hefur haldið því fram að hann hafi ákveðið útgáfudag sinnar plötu áður en Kanye West ákvað útgáfudag sinnar og því sé Kanye að storkast við sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.