Tónlist

Rammíslensk fiðla í rammíslensku safni

Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari
Sunnudaginn 26. ágúst er komið að síðustu stofutónleikum Gljúfrasteins í sumar. Á þeim munu þau Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Gerrit Schuil píanóleikari flytja verk eftir Ludwig van Beethoven og Fritz Kreisler. Guðný mun auk þess vígja nýja fiðlu sem smíðuð var á Íslandi af Hans Jóhannssyni fiðlusmiði.

Hans Jóhannsson lærði fiðlusmíði í Englandi og hefur lagt stund á þá iðn síðan 1980. Hann starfaði 12 ár í Lúxembúrg en síðustu 10 ár hefur hann verið með verkstæði í Ingólfsstræti. Að sögn Guðnýjar er Hans orðinn þekktur fiðlusmiður á erlendri grundu og smíðar hann aðallega fyrir erlendan markað. Guðný varð sjálf mjög hrifin af fiðlu sem hann smíðaði í sumar og ákvað að eigna sér hana. Í samtali við Vísi sagðist hún alltaf geta á sig fiðlum bætt. Henni finnst einnig vel við hæfi að vígja hina rammíslensku fiðlu í Gljúfrasteini.
Fiðlan góða
Hans segir vandasamt verk að búa til fiðlur. Mikill tími fer í undirbúning og í að finna rétta efnið. Hann segir flest fiðlusmiði reyna að líkja eftir frægum hljóðfærum en að hann hafi í gegnum tíðina reynt að þróa eigið módel.

Tónleikarnir á sunnudag hefjast klukkan 16 og er aðgangseyrir er 500 krónur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.