Nýr forstjóri Eimskips á Íslandi 7. september 2007 09:46 Baldur Guðnason, forstjóri Hf. Eimskipafélags Íslands. Mynd/GVA
Guðmundur Davíðsson hefur verið ráðinn forstjóri yfir starfsemi Eimskips á Íslandi En Bragi Þór Marinósson verður forstjóri yfir Norður-Atlantshafssvæði félagsins. Í tilkynningu frá félaginu segir að ráðningin sé til komin vegna skipulagsbreytinga en gífurlegur vöxtur Eimskips á undanförnum mánuðum hafi kallað á að Norður-Atlantshafssvæði félagsins verði skipt í tvennt. Haft er eftir Baldri Guðnasyni, forstjóra Hf. Eimskipafélags Íslands, í tilkynningu að félagið hafi tekið gríðarlegum breytingum á skömmum tíma. Félagið hafi starfsemi í yfir 30 löndum og séu starfsmenn nú um 14.500 talsins. Til samanburðar þá voru starfsmenn rétt um 1.200 fyrir 3 árum. „Mikilvægt er að huga vel að starfseminni hér á Íslandi sem og annarsstaðar og er það meginmarkmiðið með þessari breytingu," segir hann. Nýr forstjóri yfir starfsemi Eimskips á Íslandi mun einbeita sér að rekstri og þróun á starfsemi Eimskips á Íslandi enda er sú starfsemi mjög mikilvæg í rekstri félagsins. Forstjóri Norður-Atlantshafssvæðis mun fást við frekari uppbyggingu á svæðinu fyrir utan Ísland, einkum í Færeyjum og Noregi. Guðmundur P. Davíðsson hefur áralanga reynslu af stjórnun fyrirtækja ásamt því að hafa setið í stjórnum margra félaga. Hann starfaði nú síðast sem framkvæmdastjóri Fjárfestingafélagsins Grettis. Hann var þar áður forstöðumaður markaðsmála og vöruþróunar á fyrirtækjasviði Landsbankans á árunum 2003-2007 en var þar áður hjá SIF á árabilinu 2000 til 2003. Bragi Þór Marinósson hefur gengt stöðu framkvæmdastjóra Norður-Atlantshafssvæðis frá árinu 2006. Þar áður var hann framkvæmdastjóri alþjóðasviðs Eimskips 2004-2006 og framkvæmdastjóri dótturfélaga Eimskips í Hollandi og Belgíu 1999-2004, að því er fram kemur í tilkynningu Eimskips.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira