Lífið

Magni í útrás vinnur Bon Jovi

Söngvarinn Magni Ásgeirsson keppti um hylli tónlistarunnenda við Bon Jovi. Hann telur sig hafa unnið.Fréttablaðið/hrönn
Söngvarinn Magni Ásgeirsson keppti um hylli tónlistarunnenda við Bon Jovi. Hann telur sig hafa unnið.Fréttablaðið/hrönn
Magni Ásgeirsson er í Kanada ásamt hljómsveit sinni og spilar í Toronto í kvöld á Bier Markt klúbbnum. Þar spilaði hann líka á mánudagskvöldið.

„Við erum í svaka samkeppni við Bon Jovi sem var að spila hérna hinu megin við götuna,“ segir Magni.

„Við unnum þá samkeppni. Allavega í skemmtanagildi.“

Magni er að taka þátt í markaðsátaki Icelandair sem kynnir nú beint flug sitt til Toronto. Átakið heitir Taste of Iceland og auk Magna spilar hljómsveitin Ghost­igital á öðrum stað í borginni í kvöld.

„Markús Örn sendiherra kynnti okkur á svið og sagði fallega hluti um mig og Ísland. Meðal annars að ég væri sendiherra Íslands í heiminum öllum. Ég minnist þess nú ekki að vera á launaskrá hjá ríkinu en ef til vill ætti ég að sækja um. Það var slatti af Vestur-Íslendingum á svæðinu sem sögðu allir það sama: „Ég tala ekki gott íslenska.“

Meirihlutinn var þó Kanadamenn og ég er farinn að halda að Rock star Super­nova hafi verið jafn vinsæll þáttur í Kanada og á Íslandi. Það virtust allir kannast við mig. Miðað við þessar viðtökur get ég vel hugsað mér að spila aftur í Kanada. Þetta eru ekki nema fimm tímar í beinu flugi.“

Magni náði þeim góða áfanga á dögunum að eignast meira en tíu þúsund vini á Myspace síðunni sinni.

„Ég hef samþykkt alla þessa vini sjálfur. Ég vona að þetta sé allt gott fólk.“

Eftir Kanadadvölina snýr Magni heim og fer á páskatúr með félögum sínum í Á móti sól. Hann skemmtir á Selfossi, Eskifirði, Blönduósi og Akranesi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.