DeCode fellur um fimmtung

Gengi hlutabréfa í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, féll um 21,18 prósent við upphaf viðskiptadagsins í Bandaríkjunum í dag. Hlutabréfaverðið fór niður í 26 sent á hlut og hefur aldrei verið lægra. Gengi bréfa í félaginu stóð í 3,68 dölum á hlut um áramótin og hefur því fallið um 93 prósent síðan þá.