Eyrir tapaði engu á bönkunum, NBI orðinn hluthafi 8. desember 2008 14:44 Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris Invest. Mynd/GVA
Eyrir Invest varð ekki fyrir skakkaföllum af völdum bankahrunsins í byrjun október. Félagið hefur náð samkomulagi um að taka yfir hlut Nýja Landsbankans (NBI) í London Acquisition í hollensku iðnsamsteypunni Stork. Félagið er í eigu Landsbankans, Eyris og breska fjárfestingafélagsins Candover. Eyrir, Landsbankinn (sá gamli) og Candover luku yfirtöku á iðnsamsteypunni í janúar á þessu ári í gegnum sameiginlega eignarhaldsfélagið London Acquisition. Heildarvirði kaupanna nam 1,7 milljörðum evra. Samhliða yfirtökunni var gert samkomulag um yfirtöku Marel Food System á Stork Food Systems fyrir 430 milljónir evra. Með kaupum Eyris á hlut bankans situr Eyrir á ríflega sautján prósentum í Stork. Eyrir greiðir Landsbankanum fyrir hlutinn með nýju hlutafé og eignast Nýi Landsbankinn því 27,5 prósent í Eyrir. Þeir munu stefna að því að selja af eign sinni og halda í kringum 20 prósent síðar meir. Eyrir Invest hagnaðist um 942 milljónir króna á fyrstu tíu mánuðum ársins. Þetta er í kringum 200 milljónum krónum betri afkoma en á sama tíma í fyrra. Þetta leiðir af methagnaði hjá Marel Food Systems og Össuri, sem Eyrir er kjölfestufjárfestir í. Þá segir í uppgjöri félagsins fyrir síðustu tíu manuði að félagið hafi ekki orðið fyrir skakkaföllum af völdum bankahrunsins í október. Eigið fé sé 30,2 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 40,3 prósent. Laust fé og aðrar bankainnistæður nema 8.624 milljónum króna. Félagið hefur fengið heimild Ársreikningaskrár til að gera upp í evrum frá og með upphafi næsta reikningsári. Tilkynning Eyris
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Sjá meira