Vill styrkja Food & fun 7. febrúar 2008 10:19 Við Pollinn er á Hótel Ísafirði. Atvinnumálanefnd Ísafjarðarbæjar mælir með að bærinn styrki matarhátíðin Fóður og fjör sem haldin verður m.a. á veitingastaðnum Við Pollinn um 50.000 krónur. Rúmlega tugur veitingastaða ætla að kynna íslenskt hráefni til matargerðar auk þess sem hvert landsvæði ætlar að kynna það sem er að vetrarlagi. Á undanförnum árum hefur matarhátíðin Food & fun í Reykjavík áunnið sér veglegan sess í borgarlífinu í febrúar og nú vilja veitingastaðir úti á landi bjóða upp á spennandi matseðil í stórbrotinni íslenskri náttúru á þessum tíma árs. „Atvinnumálanefnd telur um áhugavert verkefni að ræða sem kynnir Ísafjarðarbæ með jákvæðum hætti. Mikilvægt er að verkefnið nái fótfestu þannig að sem flestir veitingastaðir geti tekið þátt í framtíðinni“, segir í bókun atvinnumálanefndar. thelma@bb.is Food and Fun Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent
Food and Fun Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent