Rostahjöðnun Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 17. júní 2008 06:00 Rostahjöðnun er óhjákvæmilegur fylgifiskur verðbólgu. Hún lýsir sér þannig að þegar sjóðir tæmast og efnahagskerfi veikist þykir þjóðinni hún síður hafa efni á að vera með rosta. Einkenni rostahjöðnunar eru meðal annars þau að útrásarhetjur verða að skúrkum og frægðarsögur af íslenskum tónlistarmönnum á erlendri grund missa flugið. Þó ber þess að minnast að Einar Bárðarson er það oft fjarverandi að hann hefur farið nokkuð á mis við verðbólgu og þar af leiðandi rostahjöðnun. Einnig eiga Disney-umbúðirnar, sem ferðafrömuðir hafa brugðið utan um ímynd Íslands, það til að verða að álpappír. Besta ráðið við þessum kvilla, sem fer okkur Íslendingum afar illa, er að minnast sögunnar af Gretti Ásmundarsyni og Þorsteini Drómundi hálfbróður hans. Þegar þeir voru að hátta eina kvöldstund í Noregi var rosti mikill í Gretti þar sem Þorsteini þótti mikið til tröllslegra handa hans koma. Átti Þorsteinn þá við mikla rostahjöðnun að etja þegar hann fór úr að ofan. Gretti þótti nefnilega lítið til handa hans koma og kvað hann hafa kerlingahendur hangandi undir öxlum. Þorsteinn sagðist þá óska þess að hendur Grettis væru ögn snauðari af afli en ríkari af gæfu. Sögulok urðu á þá leið að Þorsteinn Drómundur brá sér til Miklagarðs, ekki þó við Sundahöfn. Hafði hann þar upp á Þorbirni öngli sem var að monta sig af því að hafa höggvið Gretti í spað. Það var ekki létt verk þó Grettir hafi verið rúmfastur í lokabardaganum því hann var svo þrjóskur að þegar hann var höggvinn í hausinn brotnaði saxið. (Ef til vill er þaðan komið enska orðatiltækið „hard headed" sem notað er yfir þrjóska menn.) Þorsteinn hjó Þorbjörn öngul í herðar niður með sínum kerlingahöndum og hefndi þannig fyrir víg Grettis. Var það þjóðþrifaverk því ófleygum íbúum í Drangey hafði aldrei fækkað jafnmikið og eftir að Grettir fór í sundur og hefur byggðarþróun aldrei náð sér á strik eftir það. En Þorsteinn gerði gott betur en það og stakk undan Sigurði bónda og gekk að eignast Spes húsfreyju. Vilji menn flýtimeðferð gegn rostahjöðnun má einfaldlega minnast þess að sitt er hvað gæfa og gjörvileiki. Menn þurfa hvorki tröllahendur undir öxlum né digra sjóði til að vera Spes ... innan handar á síðkvöldum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Sigurður Eyjólfsson Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun