Dæmisaga af slysadeild 15. janúar 2008 13:54 Strákurinn minn, stálpaður, var að brjóta handarbeinið milli löngutangar og úlnliðs. Það var fótboltinn. Skriðtækling á gervigrasi. Bylta og allur þungi líkamans endaði á vinstra handarbakinu eftir nokkra loftfimleika. Svona er þetta. Sterkir strákar. Návígi. Harka. Svo tók eftirfarandi ferli við: Systir hans ók honum niður á slysadeildina í Fossvogi á áttunda tímanum í gærkvöld. Þar var sjúklingurinn skráður inn í móttrökunni. Svo tók við bið í anddyrinu. Löng bið. Mjög. Ég hringdi í systkinin klukkan tíu. Enn að bíða. Og ég hringdi aftur klukkan ellefu. Enn að bíða. Klukkan tólf sagði ég þeim að koma heim; þetta gengi ekki lengur; búin að bíða í fjóra tíma án árangurs. Strákurinn var fúll þegar heim kom. Sárþjáður náttúrlega en móðgaður yfir því hve margir voru teknir fram fyrir hann á biðstofunni. Hafði á orði að ekkert gengi þarna niðurfrá nema maður hefði foreldrana með sér; það væri ekkert hlustað á unglinga ... þeir mættu bíða. Við feðgar fórum niður á slysadeild í morgun. Skráðum okkur aftur inn. Og biðum. Fyrst í klukkustund ... en svo ekki nema í klukkustund í viðbót. Ég náði að lesa Mogga, 24st og Fréttablaðið á meðan, svo og nokkurra ára gömul tímarit, þar á meðal Hjemmet meðan Jóakim og Alkexandra voru ennþá hjón. Saknaði DV. Ég þurfti að kveðja strákinn rétt fyrir tólf. Fara í vinnuna og lesa fréttir. Konan kom í staðinn. Þá var gaurinn kominn í röntgen. Þau komust út af slysadeildinni klukkan eitt í dag; strákurinn með gifs og gjarðir frá olnboga og niðrúr. Þetta var sumsé átta tíma atlaga við heilbrigðiskerfið. Heill vinnudagur. Mannekla? Auðvitað. Og aðstaða sem væri ekki boðleg til bráðabirgða uppi á Kárahnjúkum. Guðlaugur Þór. Gerðu eitthvað í þessu, maður. Frábært starfsfólk slysadeildar á það skilið. Viðmótið þar og fagmennskan hefur alltaf verið til fyrirmyndar. Það er mín reynsla. En það þarf fleiri hendur og hús sem hæfir. Heill vinnudagur út af einu handarbroti er ga-ga ... -SER. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mannamál Sigmundar Ernis Mest lesið Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson Skoðun Halldór 27.06.2026 Halldór Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson Skoðun