Grillir í sumar Bergsteinn Sigurðsson skrifar 16. maí 2008 06:00 Hamingjan þarf ekki að fara með himinskautum, segir í ágætri bók. Það eru orð að sönnu og sést sjaldan jafn greinilega á Íslandi og um kvöldmatarleytið á sólríkum sumardögum, þegar svalir, bakgarðar, verandir og pallar iða af lífi. Þá er hamingjan að standa fyrir framan snarkandi gasgrill, með sólgleraugu og opna bjórflösku, horfa á logana læsa sig í sérvalið nautakjöt úr einhverju kjötborðinu. Íslenska hamingjan, í sinni tærustu mynd, hefur tvær kryddlegnar hliðar, kviknar við mikinn hita og varir í um það bil tíu mínútur - fimm á hvorri hlið. Á seinni hluta 20. aldar var kolagrillið hin helgu vé karlmennskunnar og nálægt því áttu konur og veifiskatar ekkert erindi. Hinn riddaralegi fyrirsláttur var eitthvað á þá leið að olíumettuð brunalyktin væri ekki konum sæmandi og gerði fíngerðum lungum þeirra jafnvel illt. Raunverulega ástæðan var vitaskuld hið opinbera leyndarmál að konur væru liðónýtir grillarar sem kynnu ekki að tendra í kolum og ættu að halda sig við meðlætið. Menn sem að öðru leyti komu aldrei nálægt matseld breyttust í meistarakokka í grennd við grillið, vissu nákvæmlega hvernig átti að stafla kolunum til að ná hámarksfuna og hversu mikill safi væri eftir í lærisneiðunum út frá blæbrigðum snarksins einu saman. Ekkert var þeim ofviða, þeir gátu grillað allt: lamb, sveppi, banana … þeir hefðu grillað skyr og harðfisk hefði einhver manað þá til þess. Harðgerðustu karlmenn urðu meyrari en nýslátraður heimalningur við það eitt að finna lykt af brennandi kolum. Vírburstinn var þeirra veldisproti. En svo kom gasið, frelsaði konur úr viðjum kartöflusalatsins og kryddsmjörsins og þær tóku til óspilltra málanna við að raða grænmetisspjótum og lúðu á teinana. Eins og hendi væri veifað varð grillið hin göfuga matargerðarlist smáborgarans, eins og einhvers staðar stendur; það rekur enda smiðshöggið á heilaga þrenningu hins íslenska sumars: sól, hiti, grill. Grillboð eru nefnilega táknmynd þess að það hafa loksins orðið langþráð endaskipti á hlutunum. Grámóskan hefur vikið fyrir tærbláum himni og grænum gróðri, ylurinn og birtan koma að ofan, brúnkan er ekta, við höfum fengið frí frá þinginu. Grillið er með öðrum orðum brennipunktur kjöraðstæðna á Íslandi, í orðsins fyllstu merkingu. Og full ástæða til að vegsama þær þá sjaldan við verðum þeirra aðnjótandi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Bergsteinn Sigurðsson Mest lesið Til hvers að læra iðnnám? Jakob Þór Möller Skoðun Vinnubrögð Carbfix eru ámælisverð Ólafur Sigurðsson Skoðun Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð? Guðrún Ósk Þórudóttir Skoðun Opið bréf til Friðriks Þórs Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard Skoðun ‘Vók’ er djók Alexandra Briem Skoðun Á að láta trúð ráða ferðinni? Ingólfur Steinsson Skoðun Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Ofþétting byggðar í Breiðholti? Þorvaldur Daníelsson Skoðun Gervigreind í daglegu lífi: 15 dæmi Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Vofa illsku, vofa grimmdar Haukur Már Haraldsson Skoðun
Opið bréf til Friðriks Þórs Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard Skoðun
Opið bréf til Friðriks Þórs Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard Skoðun