Tæknivæddur fornleifauppgröftur 11. ágúst 2008 19:17
Fornleifafræðingar hafa tekið stökk inn í framtíðina og nota nú rafmagns- og örbylgjusenda til að grennslast fyrir um lifnaðarhætti landnámsmanna í Skagafirði. Fornleifafræðingar víðs vegar að úr heiminum hafa gert jarðeðlifræðilegar rannsóknir í Skagafirði frá árinu 2001. Markmiðið er að finna og aldursgreina mannvistir á svæðinu allt aftur til landnámsins. Þeir notast við meira en hefðbundin verkfæri við rannsóknirnar, meðal annars rafmagns- og örbylgjusenda. Þótt fæstir sjái nokkuð út úr þeim upplýsingum sem þeir skila er aðra sögu að segja af fornleifafræðingunum. Árið 2001 kom hópurinn niður á langhús frá tíundu öld við Glaumbæ og ári síðar fundu þeir merki um byggð við Stóru-Seylu en á það stórbýli er minnst í Sturlungu. Veður og vindar höfðu á 900 árum afmáð öll ummerki um að nokkru sinni hefði verið mannabústaður þarna á jörðinni en hafist var handa við að uppgröft samkvæmt útreikningum sendanna. Meðal þess sem sú vinna hefur skilað er forlátur koparpeningur, ekki stór í sniðum, en það var fimm daga vinna að hreinsa hann svo vel væri. Hann minnir á margt á mynt sem slegin var í Danmörku í kringum 1040. Það sem vekur undrun, og jafnvel örbylgjusendar geta ekki svarað, er af hverju peningurinn sem fannst við Stóru-Seylu er úr kopar þegar danska myntin var slegin úr silfri.
Vísindi Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Sjá meira