Lífið

Örlygur Smári og Páll Óskar semja Idol-lag

Þeir Páll Óskar og Örlygur Smári hafa reynst vera ansi magnað tvíeyki en mörg af vinsælustu lögum síðustu tveggja ára koma einmitt úr smiðju þeirra.
Þeir Páll Óskar og Örlygur Smári hafa reynst vera ansi magnað tvíeyki en mörg af vinsælustu lögum síðustu tveggja ára koma einmitt úr smiðju þeirra.
Draumateymið Örlygur Smári og Páll Óskar Hjálmtýsson eru mennirnir á bak við lagið sem þær Anna Hlín Seculic og Hrafna Hanna Elísa Herbertsdóttir flytja á úrslitakvöldi Idol-stjörnuleitar á föstudagskvöldið.

Þá kemur í ljós hvor þeirra fer heim með tvær milljónir íslenskra króna. Tvíeykið Örlygur og Páll eru gulltrygging fyrir smelli því meðal laga sem hafa náð hæstu hæðum á vinsældalistum Íslands má nefna Allt fyrir ástina, International, Betra líf, að ógleymdum Euro­vision-slagaranum This is my life. Örlygur semur lagið en Páll Óskar sér um textagerðina.

Örlygur Smári sagði lagið, sem heitir Ég fer alla leið, vera hresst popplag. Enda ekki við öðru að búast úr smiðju tónskáldsins. „Ekki fer ég að skila af mér einhverri ballöðu í svona keppni," segir Örlygur og bætir því við að það reyni töluvert á hæfileika keppendanna tveggja.

„Þetta er ekki neitt miðjumoð, ég fékk Palla til að syngja demóið því ég treysti mér ekki til þess sjálfur," segir Örlygur sem hefur ekki hugmynd um af hverju lögin hans njóti svona mikilla vinsælda. „Ætli það sé ekki bara af því ég hef gaman af þessu sjálfur, maður er allavega bara þakklátur fyrir að fólk vilji hlusta á það sem maður er að gera."

Tónskáldið segist treysta þeim Önnu Hlín og Hröfnu fyllilega til að flytja lagið sómasamlega og koma því til skila á föstudagskvöldið. „Þegar þú ert búinn að fara í gegnum svona síu eins og Idolið áttu alveg að ráða við það."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.