Dýrindis klæði Sara McMahon skrifar 28. nóvember 2010 06:00 Þórey Björk Halldórsdóttir og Richard P. Foley opna vefverslunina Worn By Worship í byrjun desember. góðgerðamála. Fréttablaðið/Stefán
Hönnuðirnir Þórey Björk Halldórsdóttir og Richard P. Foley munu opna vefverslunina Worn By Worship 10. desember. Verslunin mun selja íslenska og erlenda fatahönnun og renna tíu prósent af hverri seldri vöru til góðgerðamála. „Richard fékk hugmyndina í hausinn fyrir ári og byrjaði að þróa hana hægt og rólega í kjölfarið. Við fórum svo að þróa hugmyndina í sameiningu fyrir svona þremur mánuðum og nú er afraksturinn loks að líta dagsins ljós,“ segir Þórey Björk. Á meðal þeirra íslensku hönnuða sem taka þátt í verkefninu eru Royal Extreme, Sonja Bent, Shadow Creature, 8045 eftir Bóas og Mundi svo fáeinir séu nefndir. Viðskiptavinurinn hefur um nokkra möguleika að velja þegar hann kaupir sér flík í gegnum vefverslunina og ræður því til hvaða málefnis fé hans rennur. Að sögn Þóreyjar verður aðeins íslensk hönnun fáanleg á síðunni þar til í byrjun næsta árs en þá munu þau Richard einbeita sér að því að fá bæði erlenda hönnuði og góðgerðastofnanir til liðs við sig. „Með síðunni langaði okkur að vekja athygli almennings og hönnuða á góðum málefnum og á sama tíma fá hönnuði aðeins til að pæla í hvaðan hráefnin sem þeir nota koma og hvernig þau eru framleidd,“ segir Þórey. Vefverslunin verður opnuð í byrjun desember en þangað til er hægt að fylgjast með verkefninu í gegnum Facebook.
Mest lesið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira