Lífið

Gerir grín að Jóni stóra

Helgi hefur gefið út ádeilubók þar sem Jón stóri er í forgrunni. fréttablaðið/valli
Helgi hefur gefið út ádeilubók þar sem Jón stóri er í forgrunni. fréttablaðið/valli

Helgi Jean Claesson hefur sent frá sér bók þar sem hinn umdeildi Jón stóri er til umfjöllunar. „Ég sá hann fyrst í ræktinni. Þá kom hugmyndin upp þegar ég sá hann tróna yfir öllum,“ segir rithöfundurinn og spéfuglinn Helgi Jean Claessen. Hann hefur gefið út sína fjórðu ádeilubók og í þetta sinn er hinn umdeildi Jón stóri, eða Jón Hilmar Hallgrímsson, í forgrunni. Jón var í fjölmiðlum fyrr á árinu í tengslum við Kúbvejamálið svokallaða.

„Ég sendi honum skilaboð á Facebook og hitti hann heima hjá honum því ég hafði engan sérstakan áhuga á að gera þetta án þess að vera búinn að spyrja hann. Ég var svolítið smeykur við að bera undir hann þessa hugmynd að ég mætti gera grín að honum. Ég var einhvern veginn viðbúinn öllu en svo brást hann mjög vel við,“ segir Helgi, sem á síðasta ári gaf út bók um Facebook með Sölva Tryggvasyni.

Að sögn Helga er nýja bókin undir áhrifum frá Íslandsklukku Halldórs Laxness þar sem persóna Jóns stóra er byggð á kotbóndanum Jóni Hreggviðssyni. Inn í söguna fléttast svo borgarstjórinn Jón Gnarr og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. „Þetta tekur svolítið á tabúunum í þjóðfélaginu,“ segir Helgi um bókina og segist ekki vera að upphefja Jón stóra með skrifum sínum, heldur velta fyrir sér þeim áhuga sem almenningur og fjölmiðlar hafa á honum. „Væri sama umfjöllun ef Jón væri sköllóttur miðaldra maður sem hefði verið að svindla út úr banka? Það er öllum sama um það einhvern veginn.“

Í lok bókarinnar tekur Helgi viðtal við Jón. „Við förum í gegnum uppvöxtinn. Þar er máluð dökk mynd af þessum heimi neyslunnar sem hann hefur reynslu af. Þarna opnar hann sig í fyrsta skipti og talar um þetta,“ segir ádeiluhöfundurinn.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×