Lífið

Sér eftir aðgerðunum

Varar stúlkur við Raunveruleikastjarnan Heidi Montag sér eftir tíu lýtaaðgerðunum sem hún fór í á einum degi. nordicphotos/getty
Varar stúlkur við Raunveruleikastjarnan Heidi Montag sér eftir tíu lýtaaðgerðunum sem hún fór í á einum degi. nordicphotos/getty

Bandaríska raunveruleikastjarnan Heidi Montag sem komst í heimsfréttirnar þegar hún lét gera tíu fegrunaraðgerðir í einu, sér eftir öllu saman í dag.

Montag, sem varð þekkt andlit eftir þátttöku sína í þáttunum The Hills sem sýndir eru á MTV sjónvarpstöðinni, vill nú nýta sína reynslu til að vara ungar stúlkur við að leggjast undir hnífinn. Montag segist sjálf gjarna vilja fá sitt gamla útlit aftur en getur ekki hugsað sér að fara í fleiri aðgerðir svo hún ætlar að láta sér lynda að vera í brjóstastærð DDD.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.