Lífið

Kendra vill bjarga hjónabandinu með öðru barni

Kendra Wilkinson telur að annað barn geti bjargað hjónabandi hennar. Nordicphotos/Getty
Kendra Wilkinson telur að annað barn geti bjargað hjónabandi hennar. Nordicphotos/Getty

Raunveruleikastjarnan og fyrrum Playboykanínan Kendra Wilkinson vill eignast annað barn með eiginmanni sínum þrátt fyrir að hafa eignast sitt fyrsta barn fyrir aðeins sex mánuðum.

Stutt er síðan kynlífsmyndband með Kendru var gert opinbert og hefur það vitanlega skapað erfiðleika innan hjónabandsins.

„Þau vilja annað barn og Kendra vonar að það gerist fyrr en síðar. Hún veit að Hank er miður sín vegna myndbandsins og hún telur að annað barn geti bjargað hjónabandinu," var haft eftir innanbúðarmanni.






Tengdar fréttir

Vel skipulagt kynlífshneyksli Playboy-kanínu

Í lok maí er von á kynlífsmyndbandi frá fyrrum Playboy-kanínunni Kendru Wilkinson en margt bendir til þess að hún hafi lagt blessun sína á útgáfuna - þrátt fyrir hótanir um málsókn.

Kendra með marga í bólinu í kynlífsmyndbandinu

Enn berast fréttir af kynlífsmyndböndum sjónvarpsstjörnunnar Kendru Wilkinson. Fréttablaðið hefur áður greint frá því að klámframleiðandinn Vivid ætlar að gefa út eitt myndbandanna í enda maí og að fleiri en eitt séu til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.