Lífið

Armstrong á Broadway

Söngvari Green Day stígur á svið á Broadway í söngleiknum sínum.
Söngvari Green Day stígur á svið á Broadway í söngleiknum sínum.

Billie Joe Armstrong, söngvari rokksveitarinnar Green Day, kemur fram í söngleik á Broadway sem er byggður á plötu þeirra, American Idiot.

Armstrong fer með hlutverk eiturlyfjasalans St. Jimmy í átta sýningum á verkinu. Söngvarinn hleypur í skarðið fyrir leikarann Tony Vincent sem þurfti að taka sér frí af persónulegum ástæðum.

Sýningin fjallar um náunga sem flýr heimkynni sín í bandarísku úthverfi og sest að í stórborg þar sem kynlíf, eiturlyf og kröftugur gítarleikur koma við sögu í leit hans að sjálfum sér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.