Styrktartónleikar Ljóssins 16. september 2010 06:00 systkini Páll Óskar Hjálmtýsson og Diddú stíga á svið á styrktartónleikunum. fréttablaðið/rósa
Páll Óskar og Diddú, Raggi Bjarna, Lay Low, Magni og Hera Björk eru á meðal þeirra sem koma fram á styrktartónleikum fyrir Ljósið 22. september í Háskólabíói. Tilefnið er fimm ára afmæli félagsins, sem var stofnað af hópi fólks sem vildi efla endurhæfingu fyrir þá sem greinast með krabbamein. „Við köllum þetta hátíðarafmælistónleika. Það hefur verið margt að gerast á þessu ári, nú síðast átakið Á allra vörum. Okkur langaði að halda eina hátíð í lokin," segir Erna Magnúsdóttir, forstöðumaður Ljóssins. „Þarna verða ofboðslega flottir listamenn sem gefa vinnuna sína og það verður rosalega mikið lagt í þessa tónleika." Aðrir listamenn sem koma fram eru Stefán Hilmarsson, Hvanndalsbræður, Karlakórinn Fóstbræður, Soffía og Guðrún Árný Karlsdætur og Guðbjörg Magnúsdóttir. Kynnir verður útvarpsmaðurinn Freyr Eyjólfsson. Ljósið er til húsa að Langholtvegi 43 en þar hefur tekist að skapa einstakt andrúmsloft með áherslu á heimilislega stemningu. Framtíðarhúsnæði fyrir starfsemina er forsenda þess að Ljósið geti haldið áfram að blómstra og veita fjölbreytta þjónustu. Allur ágóði af tónleikunum rennur í húsakaupasjóð félagsins. Erna hvetur fólk til að mæta á tónleikana og styrkja gott málefni. Miðar fást á Langholtsvegi 43 eða í gegnum Ljosid.is. - fb
Lífið Mest lesið Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Lífið „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Sjá meira