Lífið

Jamie Foxx er Cocksucker

Saman á ný Jamie Foxx og Colin Farrell léku Richardo og Sonny í Miami Vice eftir Michael Mann. Nú reyna þeir fyrir sér í gamanleik.
Saman á ný Jamie Foxx og Colin Farrell léku Richardo og Sonny í Miami Vice eftir Michael Mann. Nú reyna þeir fyrir sér í gamanleik.

Þetta átti ekki að vera dónaleg fyrirsögn heldur er þetta nafnið á persónu sem Óskarsverðlaunahafinn Jamie Foxx hefur tekið að sér að leika í gamanmyndinni Horrible Bosses. Myndinni er leikstýrt af Seth Gordon og segir sögu þriggja vina sem ákveða að taka höndum saman og drepa skelfilega vonda yfirmenn sína. Foxx mun leika svikahrapp sem býðst til að aðstoða þá með skrautlegum afleiðingum eins og nafn persónunnar gefur til kynna.

Framleiðendurnir hafa augljóslega mikla trú á handritinu því þeir hafa leitað til helstu gamanleikara Bandaríkjanna og stjörnur á borð við Owen Wilson, Vince Vaughn og Ashton Kutcher hafa verið orðaðir við hlutverkin. Þar að auki hafa leikstjórarnir Frank Oz og David Dobkin íhugað að setjast í leikstjórastólinn.

Gordon getur vart kvartað undan leikarahópnum því forsprakki vinahópsins verður leikinn af hinum ágæta Jason Bateman, stjörnunni úr Arrested Development og Juno. Honum til halds og traust verður Charlie Day úr gamanþáttunum It‘s Always Sunny in… sem vakið hafa mikla athygli.

Yfirmennirnir eru heldur ekki í lakari kantinum; fyrrum ólátabelgurinn frá Írlandi, Colin Farrell, mun leika einn og Jennifer Aniston annan. Ekki hefur hins vegar verið tilkynnt hver verður þriðji feigi yfirmaðurinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.