Lífið

Kelsey Grammer faðir á ný

Skilin að skiptum Kelsey Grammer og eiginkona hans skildu fyrir sex vikum og er hann strax búinn að barna unga, breska flugfreyju.nordicphotos/getty
Skilin að skiptum Kelsey Grammer og eiginkona hans skildu fyrir sex vikum og er hann strax búinn að barna unga, breska flugfreyju.nordicphotos/getty

Gamanleikarinn Kelsey Grammer tilkynnti fyrir sex vikum að hann og eiginkona hans til þrettán ára ætluðu að skilja. Nú er ástæðan fyrir skilnaðinum komin fram, en svo virðist sem Grammer hafi átt í ástarsambandi við unga, breska flugfreyju að nafni Kayte Walsh.

Faðir Walsh viðurkenndi í viðtali við tímaritið Daily Mail að dóttir hans ætti von á barni með Grammer og að parið væri hamingjusamt saman. „Þetta eru ánægjulegar fréttir og við samgleðjumst þeim. Ég veit ekki hversu lengi þau hafa verið saman og ég hef enn ekki hitt manninn, en ég hlakka mikið til þess. Við fengum sjálf að vita af óléttunni fyrir aðeins nokkrum dögum og þetta kom okkur öllum mjög á óvart," sagði faðir stúlkunnar. Hann telur þó að parið hafi kynnst þegar Walsh millilenti í Bandaríkjunum.

„Hún starfar fyrir Virgin Airways og flýgur gjarnan til Bandaríkjanna, ætli þau hafi ekki kynnst í einni ferðinni. Það sem skiptir mig mestu máli er að dóttir mín sé hamingjusöm."

Myndir af parinu birtust nýverið á Netinu og virðist Grammer afskaplega hrifinn af hinni ungu kærustu sinni, en stúlkan er aðeins 29 ára gömul, aðeins þremur árum eldri en elsta barn Grammers.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.