Lífið

Poppuð plata frá Perry

Vinsæl söngkona Ný plata söngkonunnar Katy Perry, Teenage dream, kemur út í næstu viku. Síðasta plata Perry náði miklum vinsældum og var á meðal fimmtíu vinsælustu platna árið 2008. nordicphotos/getty
Vinsæl söngkona Ný plata söngkonunnar Katy Perry, Teenage dream, kemur út í næstu viku. Síðasta plata Perry náði miklum vinsældum og var á meðal fimmtíu vinsælustu platna árið 2008. nordicphotos/getty

Ný plata, Teenage dream, er væntanleg innan skamms frá Katy Perry, en söngkonan sló eftirminnilega í gegn með laginu I kissed a girl árið 2008 og hefur síðan þá sent frá sér hvern smellinn á fætur öðrum.

Katy Perry er dóttir tveggja predikara og hlustaði einungis á gospeltónlist á uppvaxtarárum sínum. Hún söng í kirkjukór sem barn og var fyrsta plata hennar gospel­plata sem kom út árið 2001. Sú plata fékk dræmar móttökur en Perry lét ekki deigan síga og hélt áfram að semja og taka upp eigin tónlist. Hún gaf út netsmellinn Ur so gay í nóvember 2007 og náði lagið nokkrum vinsældum vestanhafs þrátt fyrir að mörgum þætti lagatextinn heldur niðrandi í garð samkynhneigðra. Þrátt fyrir velgengni Ur so gay náði Perry þó ekki alþjóðlegum vinsældum fyrr en ári síðar með smellinum I kissed a girl.

Fyrsta plata söngkonunnar, One of the boys, kom út árið 2008 og lenti í 33. sæti yfir vinsælustu plötur heims það ár. Næsta smáskífa plötunnar, Hot'n cold, náði einnig töluverðum vinsældum og sat lengi ofarlega á vinsældalistum víða um heim. Þrátt fyrir vinsældirnar er móðir Perry ekki sérlega hrifin af tónlist dóttur sinnar og hefur látið þau orð falla að sér þyki tónlistin „skammarleg og smekklaus".

Fyrsta plata Perry var sögð vera nokkuð rokkuð en sú næsta, Teenage dream, ku vera mun léttari og poppaðri en sú fyrri. Platan kemur út þann 24. ágúst næstkomandi og hefur titillag plötunnar þegar náð nokkrum vinsældum og bíða aðdáendur söngkonunnar spenntir eftir að heyra plötuna alla. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.