Gagnrýni

Plata sem vinnur á

Trausti Júlíusson skrifar
Puzzle með Amiinu.
Puzzle með Amiinu.
Tónlist

Puzzle

Amiina

Puzzle er önnur plata Amiinu í fullri lengd, en sú fyrri, Kurr, kom út 2007 og þótti framúrskarandi. Auk þess hefur Amiina verið dugleg að senda frá sér smáskífur og EP-plötur.

Amiina varð fyrst þekkt sem strengjasveit Sigur Rósar. Þær Edda Rún, Hildur, María Huld og Sólrún eru allar búnar að vera meðlimir lengi, en á nýju plötunni hafa þeir Guðmundur Vignir Karlsson (öðru nafni Kippi Kanínus) og Magnús Tryggvason bæst í hópinn. Stelpurnar spila sem fyrr á ýmis hljóðfæri, en Magnús er slagverks­leikari og Kippi er raftóla- og tölvugaur.

Fyrstu viðbrögðin þegar maður hlustar á Puzzle eru vonbrigði. Fyrri platan var einstök á sinn sveimkennda og ofurrólega hátt. Á Puzzle eru komnir skröltandi raftaktar og ásláttur þannig að það fyrsta sem kemur upp í hugann er að Amiina sé farin hljóma eins og múm fyrir nokkrum árum, sem væri ekki endilega slæmt þannig lagað, en ekki það sem maður er að leita eftir.

Þegar maður hlustar betur kemur hins vegar þessi ósvikni Amiinu-hljómur í gegn og lögin vinna á. Mín uppáhaldslög eru What Are We Waiting For?, Púsl, Mambó, Thoka og sérstaklega Sicsak sem er frábært. Og þá er ég kominn í fimm lög af átta. Ekki slæmt…

Niðurstaða: Amiina heldur kjarnanum, en bætir í litrófið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.