Með Veiðikortið í vasanum Karl Lúðvíksson skrifar 1. júní 2011 13:27 Það er víða ennþa´vetrarlegt fyrir norðan
Hann Einar sendi okkur frásögn af því þegar hann skaust til veiða í Kringluvatn fyrir norðan. Það hefur eitthvað látið bíða eftir sér sumarið fyrir norðan en við látum frásögnina tala sínu máli, "Ég var á leiðinni á Húsavík og ákvað að taka nokkur köst í Kringluvatn. Eftir mislukkaða tilraun til að veiða Sænautavatn þar sem það var enn ísilagt og ófært að því í þokkabót, þá var nú bjartsýnin ekki mikil er ég kom að slóðanum við kringluvatnið. LOKAÐ, LOKAÐ! Vegurinn var enn töluvert blautur og partur af honum enn undir snjó. Með von í að krækja í fisk þá lagði ég af stað léttklæddur þar sem vorið virtist vera handan við hornið. 1,7 km síðar var ég rétt ókominn að bakkanum er endur í hundraðatali sem höfðu komið sér vel fyrir við útfallið, tóku á flug með tilheyrandi vængjaslætti og tilhlaupum. Ekki átti ég nú von á miklu úr þessu en ákvað þó að reyna. Vatnið var enn töluvert kalt og var því neoprenið kærkomið. Byrjað var á púpum í yfirstærð, watson fancy, molinn, montana, svo komu nobblerarnir, og restin af straumflugunum, áður en ég vissi var ég hálfnaður með boxið án þess þó að verða var. Himbriminn hafði fært sig nær og nær, og hafði góðar gætur á því sem ég var að gera. Ég ákvað að prófa við hinn enda vatnsins þar sem rennur smá lækur í það. Á leið minni rakst ég á tjaldstæðið sem var á kafi í snjó, þannig að ef eitthver hafði gert sér vonir um að tjalda við bakkann þá held ég að það sé óhætt að geyma það í tvær vikur eða þrjár.Bleikja dregin á land úr KringluvatniEftir að hafa nestað mig upp, skellti ég nobblernum undir, með það í huga að svangur silungur stæðist ekki svona bita. Það leið ekki á löngu þangað til ég fékk högg, og svo fljótlega var fiskur á! Ekki náði hún pundi og var frekar ræfilslega að sjá, en fallegur er litur bleikjunnar. Fljótlega urðu þær tvær, svo þrjár og fjórar en þá mætti himbrimaparið á svæðið og um leið dróg fyrir töku. Það gerði nú lítið til því ég þurfti að halda áfram ferð minni til Húsavíkur. Á bakaleiðinni var fjölskrúðugt fuglalíf að sjá, m.a. straum og gargendur, fálka, rjúpur og einn ref sem skaust á milli hóla. Ekki voru þeir margir eða stórir í minni fyrstu ferð í Kringluvatn en ég á án efa eftir að koma þangað aftur enda vatnið úr alfara leið og er eflaust gaman að tjalda við bakkann á góðum sumardegi, enda rólegt og fallegt umhverfi við vatnið. Bestu kveðjur, Einar Guð
Stangveiði Mest lesið 100 sentímetra lax í Breiðdalsá Veiði Tarantino tók maríulaxinn í Hítará Veiði Tröllvaxnar bleikjur í Varmá Veiði Metsumar í Stóru Laxá - 795 laxar á land Veiði Ofurdýravinur smyglar sér inn í hóp skotveiðimanna á Facebook Veiði Góð rjúpnaveiði á heiðum norðanlands Veiði Viðrar illa fyrir fyrsta veiðidaginn í Þingvallavatni Veiði Verðlækkun í Rússnesku ánum Veiði Urriðaveiðin að toppa á Þingvöllum Veiði Veiðin í Langá á Mýrum þokast upp á við Veiði