Sólarlitir og fjörleg munstur í sumaryl 13. apríl 2011 20:30 Eftir heldur daprar vikur sem hafa einkennst af hörmungum í Japan og óróleika í arabalöndum virtist skyndilegur vorhiti smita Parísarbúa á laugardag. Skyndilega fylltust búðir og götur af fólki í leit að léttari klæðnaði til daglegra nota. Verðandi brúðir freistuðu þess að finna kjóla fyrir borgaralega brúðkaupið og líka tilvonandi tengdamömmur sem eru að fara að gifta börnin sín því vorið og sumarið er hér tími brúðkaupa. Litirnir í sumar eru sterkir og að sjálfsögðu tilbreyting frá öllum dökku vetrarlitunum en ekki síður frá hinum týpísku fölu sumarlitum í pastel sem svo gjarnan einkenna sumartískuna. Nú eru þeir fúksíubleikir, gulrauðir eða sítrónugulir og er jafnvel blandað saman fleiri en einum. Látleysi er ekki lykilorðið í sumar því í viðbót við sterka liti er mikið um munstrað efni og oft í afgerandi litum. Þar getur allt eins verið um að ræða rómantískt blómamunstur með litlum frelsisblómum upp í heilu blómagarðana á flíkinni. Svo má nefna ýmis konar grafísk munstur í anda síðhippaáranna með skörpum línum. Blúndur og útsaumur eru enn áberandi hjá mörgum hönnuðum eins og hefur verið og oft eru stórar heklaðar blúndur saumaðar á annað efni.Stuttbuxur verða áfram ómissandi og, líkt og bermúdabuxur hjá herrunum, notaðar í staðinn fyrir síðbuxur, sem í eina tíð þótti ekki fínt í daglegu borgarlífi. Nú þykir ekkert athugavert við að vera í stuttbuxum alla daga og ef sólin hverfur eru bara notaðar munstraðar sokkabuxur við, sem ætti að gleðja íbúa á norðurslóðum. Önnur góð frétt fyrir þá sem búa við lágan sumarhita er perfektó-leðurjakki sem er ómissandi í sumar, stuttur og dálítið rokkaralegur, til dæmis í rauðu leðri hjá Jean-Paul Gaultier, fínn til að halda á sér hita ef ekki rignir. Nýjungarnar eru ekki margar hjá tískuhúsunum í sumar en ein þeirra er kragalaus jakki, bæði frá Carven og Stellu McCartney. Hins vegar sagði mér innkaupastjóri hjá einu af stóru magasínunum í París að kragalausir jakkar og frakkar væru alltaf erfiðir í sölu því viðskiptavinirnir spyrðu alltaf hvað ætti að setja um hálsinn. Annað merkilegt: þó að hælar séu enn svimandi háir eru strigaskór í stíl Converse inni líka, hinar frægustu stjörnur spóka sig í þeim, jafnvel þær sem ganga um með fimm þúsund evru Hermès-töskur. Sumir hanna slíka skó fyrir þekkt skómerki en aðrir framleiða sína eigin, eins og Lanvin eða Dolce et Gabbana. bergb75@free.fr Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Bakþankar Bergþór Bjarnason Mest lesið „Er ekki bara best að hætta þessu fiskeldi?” Halla Hrund Logadóttir Skoðun Sumt er hægt að verja aðeins einu sinni Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Það er pláss fyrir einn aldraðan einstakling í stofunni hjá mér Steinunn Þórðardóttir Skoðun Hvíl í friði, Bifrastarandinn Selma Klara Gunnarsdóttir Skoðun Þegar álag barns reynir á hjónabandið Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hollt mataræði þarf ekki að vera flókið – bara framkvæmanlegt Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir ,Gunnhildur Sveinsdóttir Skoðun Stefnt að stjórnleysi í ríkisfjármálunum Sigurður Örn Hilmarsson Skoðun Reykjavík er okkar allra Hlédís Maren Guðmundsdóttir Skoðun Kópavogur og amma Stella Pétur Björgvin Sveinsson Skoðun Að liggja á göngum sjúkrahúsa Árni Gunnarsson Skoðun
Hollt mataræði þarf ekki að vera flókið – bara framkvæmanlegt Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir ,Gunnhildur Sveinsdóttir Skoðun
Hollt mataræði þarf ekki að vera flókið – bara framkvæmanlegt Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir ,Gunnhildur Sveinsdóttir Skoðun