Erum stærstir hérlendis 21. júlí 2011 11:00 @Concept_myndatextar:Starfsmenn Poulsen, Skeifunni 2, kappkosta að þjónusta viðskiptavini.mynd/anton
Poulsen hefur á síðustu árum flutt sig inn í bílavarahlutageirann á Íslandi. Bílrúðuskipti er nú eitt af sérsviðum fyrirtækisins sem skiptir við umsvifamestu bílrúðuframleiðendur í heimi. Fyrirtækið Poulsen er eitt af rótgrónustu fyrirtækjum landsinns, stofnað af hinum danska Valdimar Poulsen fyrir öld. Upphaflega var Poulsen járnsteypufyrirtæki og mikilvirkt í innflutningi og sölu á varahlutum. Bílrúðuskipti eru nú eitt af sérsviðum þess. Ragnar Matthíasson, einn eigenda Poulsen, útskýrir hvernig þau ganga fyrir sig. „Þetta er einfalt mál. Ef brotin rúða er í bílnum, hvort sem er að framan, aftan eða á hliðunum, pantar fólk tíma í bílrúðuskipti. Það lætur okkur í té upplýsingar um númer bílsins og hvar hann er tryggður. Síðan mætir það með bílinn á umsömdum tíma, yfirleitt snemma dags og fyllir út tjónaskýrslu. Bílinn getur það sótt seinnipartinn og greiðir þá sjálfsábyrgð. Viðgerðir eru hins vegar eigandanum að kostnaðarlausu.“ Ragnar segir Poulsen leggja ríka áherslu á góða þjónustu og gæði sem endurspeglist í vöruframboði fyrirtækisins. „Við flytjum inn stærstu merkin í bílrúðum, AGC og Pilkington sem er virtasti og umsvifamesti bílrúðuframleiðandi í heiminum,“ bendir hann á og getur þess að í gegnum Pilkington hafi Poulsen myndað tengsl við einn stærsta kíttisframleiðandann, Dow. „Við erum í viðskiptum við Dow þar sem það er leiðandi í þróun á kítti. Enda verður kítti að vera öflugt til að tryggja allt öryggi, halda bílrúðum á sínum stað og til dæmis fyrirbyggja að framrúður skjótist úr bílum þegar loftpúðar springa út.“ Að sögn Ragnars sinnir Poulsen bæði einstaklingum og fyrirtækjum, þar á meðal tryggingafyrirtæki, og allar gerðir bifreiða. „Við eigum nánast allar tegundir af rúðum á lager. Ef þær eru ekki til útvegum við þær á stuttum tíma, allt niður í sólarhring,“ útskýrir hann og getur þess að fyrirtækið sjái bifreiðaeigendum fyrir neyðarrúðum eða plasti í hliðar og aftanverða bíla ef teygist á biðinni. „Hvort tveggja er vandað og öflugt.“ Að lokum getur Ragnar þess að Poulsen selji jafnframt bílrúður til verkstæða, sjálfstæðra aðila um land allt. „Við þjónustum öll helstu verkstæðin í landinu og erum klárlega mjög umsvifamiklir í þeirri þjónustu hérlendis.“ Poulsen er í Skeifunni 2. Hægt er að panta tíma í bílrúðuskipti með því að hringja í síma 5305900. Allar nánari upplýsingar á heimasíðu fyrirtækisins á slóðinni www.poulsen.is.
Sérblöð Mest lesið Bíllinn þremur milljónum dýrari Viðskipti innlent Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent Lindex lokað á Íslandi Viðskipti innlent Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Neytendur Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Viðskipti innlent S4S-veldið tekur við Lindex Viðskipti innlent Boðar aðgerðir til að koma reglu á „gjaldskyldufrumskóg“ Neytendur Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Viðskipti innlent Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Viðskipti innlent Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira