Blanda komin yfir 1.100 laxa 28. júlí 2011 05:00 Kristján Jóhann Reinholdsson með tíu punda flugulax úr Bæjarhólum.
Þó að laxveiðin í Blöndu hafi ekki verið eins mikil í sumar og á tveimur síðustu árum hefur veiðin verið þokkaleg. Samkvæmt upplýsingum frá Lax-á hafa veiðst um 1.100 laxar. Hlutfall stórlaxa er sagt vera hátt eins og vanalega. Þá segir á agn.is að staðan í Blöndulóni sé „betri en menn þorðu að vona“. Norðurá í Borgarfirði var hins vegar komin í 1.170 veidda laxa fyrir viku. Miðað við heimasíðu Landsvirkjunar er vatnshæðin í lóninu nú svipuð og verið hefur á þessum árstíma að meðaltali síðustu fimm ár. Haldist það má búast við að Blanda fari ekki á yfirfall fyrr en eitthvað er liðið af ágúst. - gar
Stangveiði Mest lesið Zeldan er einföld en gjöful fluga Veiði Miðá í Dölum til SVFR Veiði Erlendir veiðimenn uggandi yfir líklegu eldgosi Veiði Fish Partner með veiðiferðir erlendis Veiði Loksins líf í Straumunum Veiði 79 laxa lokadagur í Eystri Rangá Veiði 11 og 12 punda laxar í opnun Hvannadalsár Veiði Voru við veiðar í Tungulæk þegar gosið hófst Veiði Góð opnun í Blöndu Veiði Mikil aukning erlendra veiðimanna í silung Veiði