Lífið

Lagahöfundar leggja undir sig heilsuhótel

Ekkert detox Jens Hansson, Jónas Sigurðsson og Hafdís Huld eru meðal þeirra sem ætla að mæta í söngvasmiðju FTT á Heilsuhótelinu Ásbrú í Reykjanesbæ. Meðal annarra gesta má nefna Paul Simm sem vann með Amy Winehouse og Sugababes.
Ekkert detox Jens Hansson, Jónas Sigurðsson og Hafdís Huld eru meðal þeirra sem ætla að mæta í söngvasmiðju FTT á Heilsuhótelinu Ásbrú í Reykjanesbæ. Meðal annarra gesta má nefna Paul Simm sem vann með Amy Winehouse og Sugababes.
„Þetta er ekkert yfirskin hjá lagahöfundum sem eru að fara saman í detox,“ segir Jón Ólafsson, framkvæmdastjóri FTT, Félags íslenskra tónskálda og textahöfunda.

Dagana 5.-9. september fer fram söngvasmiðja á vegum félagsins á Heilsuhótelinu Ásbrú í Reykjanesbæ. Hótelið hefur einna helst verið þekkt fyrir detox-meðferðir sínar og þar ræður ríkjum engin önnur en Jónína Ben. Jón segir staðsetninguna fyrst og fremst hagkvæma, þeir taki hótelið á leigu og engin önnur starfsemi verði í gangi á meðan.

„Ég fór út á land og skoðaði gistiaðstöður en fann aldrei neitt nógu stórt og ódýrt, þetta heilsuhótel er á gamla varnarsvæðinu og allt hjá Kananum er svo stórt.“

Samkomuna heiðrar góður gestur, lagahöfundur að nafni Paul Simm, en hann hefur unnið með listamönnum á borð við Amy Winehouse, Sugababes, All Saints og Neneh Cherry. Jón segir hann vera mikinn hvalreka fyrir íslenska lagahöfunda. Og af þeim verður nóg á heilsuhótelinu. Meðal þeirra sem boðað hafa komu sína eru Jónas Sigurðsson, Hafdís Huld, Örlygur Smári og Jens Hansson auk nokkurra efnilegra lagahöfunda frá Írlandi, Danmörku og Svíþjóð.- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.