Lífið

Lárus Welding aðstoðar kraftakarla

Ívar Guðmundsson
Ívar Guðmundsson
„Lárus hefur verið að gefa okkur góð ráð og verið okkur innan handar við samningsgerð. Hann hefur kennt okkur hvernig við eigum að bera okkur að því svona samningsmál eru hafsjór af alls konar gildrum. En hann á hins vegar engan hlut í fyrirtækinu,“ segir útvarpsmaðurinn, athafnamaðurinn og fitness-kappinn Ívar Guðmundsson.

Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, hefur aðstoðað Ívar og samstarfsfélaga hans, Arnar Grant, við að halda utanum samninga en lífsstílsvörur þeirra félaga hafa notið mikilla vinsælda að undanförnu. Ívar segir að Arnar hafi fyrst komist í kynni við bankamanninn þegar hann var í einkaþjálfun hjá honum. „Og við höfum getað leitað til hans og líka Hemma bróður [Hermanns Guðmundssonar, framkvæmdastjóra N1].“

Ekkert lát hefur verið á vinsældum drykkjarins Hámarks en í fyrra seldust 1,2 milljónir ferna. „Það er svona tuttugu prósenta aukning í ár,“ segir Ívar en þeir seldu jafnframt 200 þúsund orkustangir árið 2010. „Við erum líka að byrja með vítamínlínu sem er fjölvítamín-tafla, ein fyrir karla og ein fyrir konur.“

Þá hafa þeir verið að prófa sig áfram með matarpakka á vefsíðunni pakkinn.is enda segir Ívar það algengustu spurninguna sem hann fái frá fólki, hvað það eigi að borða. „Þetta er tiltölulega nýbyrjað og það eru fjörutíu til fimmtíu manns hjá okkur í mat núna. Við gerum okkur vonir um að þetta verði í kringum hundrað manns.“ - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.