Rómantísk, íslensk haustbirta 14. september 2011 11:00 Dæmi um fallegt samspil ljóss og skugga með útiljósum frá S. Guðjónsson við Hörpu. Lýsing hönnuð af Verkís. Mynd/RÖJ/Verkís
Hugguleg díóðu-útilýsing frá S.Guðjónsson við Hótel Loftleiðir.Mynd/Árni Torfason Haustið er rómantískur tími, þegar daginn fer að stytta og hugguleg útiljós kallast á við tilkomumikið sólsetrið. Hjá Prodomo, sýningarsal S. Guðjónsson í Auðbrekku, fást íslensk útiljós í ætt við eldgos. Þegar hausta tekur og daginn fer að stytta huga húseigendur gjarnan að útilýsingu. Margir hafa notað sumarið til pallasmíða og vantar nú falleg garðljós til að fullkomna verkið og lýsa upp pallinn og nánasta umhverfi hans," segir Skarphéðinn Smith, framkvæmdastjóri S. Guðjónsson sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu á lýsingarbúnaði í sýningarsal sínum í Kópavogi. Skarphéðinn bendir á að oft sé farið af stað með uppsetningu útiljósa án þess að aðgæta hvort ljósin passi í raun umhverfi sínu. „Lýsingu þarf því að ígrunda vel og gott að leita til fagfólks áður en hafist er handa. Hjá okkur tekur lýsingarhönnuður á móti fólki og hjálpar því að leysa málið á besta veg," segir Skarphéðinn og leggur áherslu á að margt þurfi að hafa hugfast svo útkoman verði góð. „Fyrir fólk utan af götunni er erfitt að vita um bestu úrræðin þegar skapa á fallega útilýsingu. Að mörgu er að huga, eins og gróðri í görðum, sem gegnir veigamiklu hlutverki þegar kemur að samspili lýsingar og umhverfis. Þannig eiga við mismunandi lausnir eftir því hvort lýsa eigi upp göngustíga og beð með lágum gróðri, grjót, hellur eða göngustíga með hærri gróðri til hliðanna," segir Skarphéðinn og bendir á að lýsing á sólpöllum sé æði misjöfn líka. „Á einum stað getur dauf, óbein lýsing hentað best, en annars staðar er þörf á góðri lýsingu, eins og við grill og útiborð þar sem fólk þarf að sjá vel til," útskýrir Skarphéðinn. „Þegar kemur að lýsingu í þakskeggjum er líka úr vöndu að ráða og þarf meðal annars að gæta að því að staðsetja lampa og skær útiljós fjarri svefnherbergisgluggum til að losna við við óæskilega birtu sem truflar nætursvefn."Skarphéðinn Smith, framkvæmdastjóri S. Guðjónsson.Mynd/PjeturVið íslenskar aðstæður þarf að vanda vel val á ljósgjafa í útiljós. „Það segir sig sjálft að 230 volta halógenperur henta ekki því endingartími þeirra við kjöraðstæður er aðeins 1.500 til 2.000 klukkustundir. Hérlendis skiptast á frost og þíða sem gerir endingu ljósapera mun minni. Ákjósanlegast er því að nota sparperur með allt að tífaldri endingu halógenpera, en sá galli fylgir sparperum að stærð þeirra passar ekki í hvaða ljós sem er, ásamt því að birta þeirra er flatari en fólk á að venjast," upplýsir Skarphéðinn og minnir á nýjasta kostinn í peruhillum landsins, sem eru ljóstvistar eða LED (díóður). „Ljóstvistur er enn fremur dýr valkostur, en sparneytni og góð lýsing hans er ótvíræð, ásamt endingu í allt að 50 þúsund klukkustundir." Íslensk byggðarlög eru langflest við sjó og því mikil selta í lofti. Skarphéðinn segir það vega þungt þegar valin eru útiljós. „Hérlendis bresta á veður sem þekkjast ekki annars staðar og mikilvægt að kaupa vandaðan ljósabúnað. Útiljós með álumgjörð eru vinsæl, en þá stendur valið á milli ódýrra eða dýrari ljósa. Velji menn fyrri kostinn blasir við viðhald og sprautun á nokkurra ára fresti, sem þarf ekki að vera slæmur valkostur. Hágæða álljós eru dýr, en munurinn felst í sérblönduðu áli sem laust er við kopar sem er í ódýrari áli. Þá eru vandaðri álljós sérmeðhöndluð, yfirborð þeirra sýru- og efnaþrifið, og lökkun þess óhefðbundin með rafmögnun epoxy-efna og húðun bakaðri við háan hita," útskýrir Skarphéðinn sem býður þjónustu reynslumikils starfsfólk. „Gamla, góða viðmiðið „minna er betra" er í fullu gildi og fátt verra en yfirlýstir garðar. Skuggar þurfa að leika um garðinn til að fá í hann karakter og fallegasta lýsingin er sú þar sem næst rétt samspil ljóss og skugga." Prodomo/S. Guðjónsson er til húsa í Auðbrekku 9-11 í Kópavogi. Heimasíða er prodomo.is.
Mest lesið Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Viðskipti innlent Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Viðskipti innlent Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Smitten á lista yfir mesta tekjuaukningu á Norðurlöndum Jólagjöfin sem kemur sér alltaf vel Ævintýrið heldur áfram með Discovery! Halda jólin frítt með inneign í appinu Barnamálaráðherra keypti fyrsta Jólaálfinn EX90 sló í gegn á frumsýningu hjá Brimborg Reykskynjara vantar of víða – Eldvarnarátak stendur nú yfir Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar? Greiðsluáskorun Eini sjö sæta rafbíllinn frá Peugot Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Sjá meira