Lífið

Biggi í Maus skrifar kvikmyndahandrit

Nýtt tvíeyki Birgir Örn Steinarsson, Biggi í Maus, og Baldvin Z skrifa handrit að íslenskri kvikmynd sem fer í tökur seint á næsta ári.Fréttablaðið/Pjetur
Nýtt tvíeyki Birgir Örn Steinarsson, Biggi í Maus, og Baldvin Z skrifa handrit að íslenskri kvikmynd sem fer í tökur seint á næsta ári.Fréttablaðið/Pjetur
„Það er virkilega gaman að hafa hans sýn enda kemur hann ekki úr kvikmyndagerðarstéttinni,“ segir kvikmyndaleikstjórinn Baldvin Z. Seint á næsta ári hefjast tökur á nýrri íslenskri kvikmynd eftir handriti Baldvins og Birgis Arnar Steinarssonar, betur þekkts sem Bigga í Maus.

Þetta verður í fyrsta skipti sem skrif Birgis rata á hvíta tjaldið. „Þetta byrjaði þannig að ég hafði gengið með hugmynd í maganum frá því að ég kláraði Óróa en lenti í skelfilegri ritstíflu. Við Biggi vorum síðan að ræða saman og hann deildi því með mér að hann hefði alltaf dreymt um að skrifa kvikmyndahandrit.“

Baldvin bað Birgi um að leysa úr stíflunni fyrir sig og það gerði hann með glæsibrag. „Upp frá því byrjuðum við að vinna saman.“

Baldvin hefur haft í nægu að snúast á árinu, hann hefur verið á þönum um alla Evrópu að fylgja eftir kvikmynd sinni Óróa á kvikmyndahátíðum en myndin verður til að mynda frumsýnd í Þýskalandi á næstunni og verður þá sýnd í sjötíu kvikmyndahúsum í fimmtíu borgum. Þá er DVD-útgáfan væntanleg í næsta mánuði.

Baldvin hefur þó ekki náð því að fara á allar þær kvikmyndahátíðir sem honum hafa staðið til boða, enda verið önnum kafinn við upptökur á gamanþáttaröðinni Hæ Gosi! Baldvin er jafnframt einn af fjórum handritshöfundum Áramótaskaupsins í ár. Og nærvera hans í þeim hópi kom honum sjálfum á óvart. „Enda gerði ég eina þunglyndislegustu unglingamynd Íslands frá upphafi,“ segir Baldvin og hlær.- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.