Lífið

Houston á hvíta tjaldið

Snýr aftur
Fimmtán ár eru liðin frá því að Whitney Houston sást á hvíta tjaldinu.
Snýr aftur Fimmtán ár eru liðin frá því að Whitney Houston sást á hvíta tjaldinu.
Söngkonan Whitney Houston snýr aftur á hvíta tjaldið á næstunni í endurgerð kvikmyndarinnar Sparkle frá árinu 1976.

Idol-stjarnan Jordin Sparks leikur einnig í myndinni sem er byggð á sögu hljómsveitarinnar The Supremes. Fyrsta kvikmyndahlutverk Houston var í The Bodyguard árið 1992 og lék hún í nokkrum myndum í kjölfarið, en hefur ekki leikið í fimmtán ár. Í Sparkle leikur hún móður Jordin Sparks, sem vill að dóttir sín stígi varlega til jarðar í tónlistarbransanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.