Tónlist

Hjálmar með nýtt lag

nýtt lag
Hljómsveitin Hjálmar hefur sent frá sér lagið Ég teikna stjörnu.
nýtt lag Hljómsveitin Hjálmar hefur sent frá sér lagið Ég teikna stjörnu.
Hjálmar hafa sent frá sér nýtt lag sem nefnist Ég teikna stjörnu. Það verður á væntanlegri plötu hljómsveitarinnar, Órar, sem kemur út 3. nóvember. Hjálmar eru lagðir af stað í tónleikaferð til Finnlands, Rússlands og Eistlands, eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum. Þar koma þeir fram á sjö tónleikum og fara í hljóðver með finnska tónlistarmanninum Jimi Tenor.

Hjálmar verða fulltrúar Íslands á stórri bókakaupstefnu í Turku í Finnlandi. Þeir halda einnig tónleika með Jukka Poika, sem er einn vinsælasti tónlistarmaður Finna og spilar einmitt reggí eins og Hjálmar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.